Coutinho segist ekki horfa til Kínagullsins né spænsku stórveldanna Kristinn Páll Teitsson skrifar 28. janúar 2017 12:30 Coutinho fagnar hér einu af mörkum sínum í vetur fyrir meiðsli. vísir/getty
Brasilíski miðjumaðurinn Philippe Coutinho sem skrifaði nýlega undir nýjan samning hjá Liverpool segir að þrátt fyrir að blaðamenn orði hann við önnur lið sé hann og verði ánægður áfram í herbúðum Liverpool. Coutinho varð á dögunum launahæsti leikmaðurinn í herbúðum Liverpool en hann er reglulega orðaður við Barcelona þar sem vinur hans Neymar leikur. Hafa stjörnur á borð við Ronaldinho kallað eftir því að Börsungar bjóði í Coutinho en Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, sagði félagið varnarlaust ef Real Madrid eða Barcelona komi kallandi. Þá eru kínversku félögin alltaf til að greiða háar fjárhæðir fyrir fræga leikmenn frá evrópsku deildunum en Coutinho segist ekki ætla að hlusta á slíkt næstu árin. „Ég skil hvað það þýðir að spila fyrir Liverpool, ég finn fyrir metnaðinum hjá öllu félaginu og mér fannst rétt að skrifa undir nýjan samning. Markmið mitt er að verða goðsögn hjá félaginu, koma því aftur í fremstu röð og vinna titla,“ sagði Coutinho og var hreinskilinn er hann var spurður út í leikmenn sem halda til Kína: „Ég hugsa ekki um slíkt, ég hef engan áhuga á þessari stundu. Framtíð mín liggur hér og ég hugsa ekki um neitt annað félag. Í framtíðinni verður Liverpool vonandi í fremstu röð og við keppumst við bestu lið Evrópu á ný.“
Enski boltinn Tengdar fréttir Carragher: Coutinho fer alveg eins og Suárez og allir hinir ef Barca eða Real hringja Það er ekki hægt að stöðva það að leikmenn fari til spænsku risanna því þar vilja allir spila. 26. janúar 2017 13:45 Coutinho orðinn launahæstur eftir nýjan fimm ára samning Stórtíðindi fyrir stuðningsmenn Liverpool en einn besti leikmaður liðsins gerði risasamning við félagið. 25. janúar 2017 08:23 Mest lesið Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Fótbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti KA - Víkingur | Meistararnir á Akureyri Íslenski boltinn KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Íslenski boltinn Uppgjör: Valur-ÍBV 2-1 | Hólmar tryggði Val fyrsta sigur sumarsins Íslenski boltinn Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Fleiri fréttir Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Sjá meira
Carragher: Coutinho fer alveg eins og Suárez og allir hinir ef Barca eða Real hringja Það er ekki hægt að stöðva það að leikmenn fari til spænsku risanna því þar vilja allir spila. 26. janúar 2017 13:45
Coutinho orðinn launahæstur eftir nýjan fimm ára samning Stórtíðindi fyrir stuðningsmenn Liverpool en einn besti leikmaður liðsins gerði risasamning við félagið. 25. janúar 2017 08:23