Fellaini sá rautt í markalausum borgarslag Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. apríl 2017 21:00 Fellaini fékk rautt fyrir að skalla Agüero. vísir/getty
Manchester City og Manchester United gerðu markalaust jafntefli í borgarslagnum á Etihad í kvöld. Ekkert mark var skorað en Maraoune Fellaini fékk að líta rauða spjaldið á 84. mínútu fyrir að skalla Sergio Agüero. City-menn voru mun sterkari aðilinn í leiknum, þá sérstaklega í seinni hálfleiknum þar sem United náði ekki upp neinu spili. Agüero var hættulegasti maður vallarins í fyrri hálfleik. Hann átti skot í stöng á 10. mínútu og tvær aðrar fínar tilraunir. United fékk tvö úrvalsfæri í fyrri hálfleik. Fyrst varði Claudio Bravo frá Henrikh Mkhitaryan og Ander Herrera skallaði svo framhjá af stuttu færi. Í seinni hálfleik jók City pressuna en tókst ekki að koma boltanum yfir línuna. Varamaðurinn Gabriel Jesus skoraði í uppbótartíma en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Það munar áfram einu stigi á liðunum. City er í 4. sæti en United í því fimmta.Leik lokið: Atkinson flautar til leiksloka. United fer heim með stigið sem liðið spilaði upp á.90+6. mín: Agüero í fínu færi en hittir ekki markið.90+1. mín: Varamaðurinn Gabriel Jesus skorar en markið er réttilega dæmt af vegna rangstöðu.84. mín: RAUTT!!! Maraoune Fellaini skallar Agüero og Atkinson lyftir rauða spjaldinu! Heimskulegt hjá Belganum.80. mín: Nóg af skiptingum. Navas kemur inn fyrir Sané og Lingard skiptir við Martial. Þá er Bravo farinn af velli vegna meiðsla og Willy Caballero kominn í mark heimamanna.66. mín: Leroy Sané með hornspyrnu beint á kollinn á Nicolás Otamendi sem skallar boltann í Eric Bailly og yfir.65. mín: United hefur ekki náð upp neinu spili í seinni hálfleik og ekkert ógnað marki City.58. mín: Kevin De Bruyne kemur inn á völlinn og á skot sem fer af varnarmanni og í hliðarnetið. City mun sterkari aðilinn þessa stundina.47. mín: Sterling með sprett og skot sem De Gea ver auðveldlega.Seinni hálfleikur hafinn: Þetta er farið af stað á ný! Engar breytingar á liðunum.Fyrri hálfleik lokið: Atkinson flautar til hálfleiks. Staðan markalaus. City hefur verið meira með boltann og Agüero verið ógnandi en United hefur fengið tvö úrvalsfæri.45. mín: Rashford með fína aukaspyrnu inn á teiginn á Ander Herrera sem er frír á fjær en nær ekki að stýra boltanum á markið. Þarna á Spánverjinn að gera betur.43. mín: Sterling með skot yfir eftir að hafa losað sig við Blind sem hefur verið í smá basli hér í fyrri hálfleiknum.36. mín: Kolarov með skot sem De Gea ver í horn. City-menn halda Spánverjanum við efnið.33. mín: Agüero leikur á Daley Blind og skýtur yfir. Argentínumaðurinn hefur verið hættulegasti maður vallarins hingað til.32. mín: Agüero með ágætis skot fyrir utan teig en David De Gea ver.24. mín: Bravo í tómu rugli, slær fyrirgjöf Martials beint fyrir fæturna á Mkhitaryan sem á skot sem Sílemaðurinn ver. Ekki sannfærandi þarna.18. mín: Boltinn er of linur. Við fáum nýjan bolta. Bjóðum hann velkominn til leiks.10. mín: Sergio Agüero í DAUÐAFÆRI en skýtur boltanum í stöngina. Hann er vanur að skora á móti United en gerði það ekki þarna.6. mín: Mkhitaryan byrjar sem fremsti maður hjá United með Rashford og Anthony Martial á köntunum.Leikur hafinn: Martin Atkinson flautar til leiks!Fyrir leik: Það fór vel á með Guardiola og Mourinho fyrir leik. Ekki alltaf verið þannig.Fyrir leik: United er enn með í Evrópudeildinni en City getur eingöngu einbeitt sér að ensku úrvalsdeildinni.Fyrir leik: José Mourinho gerir fjórar breytingar á liðinu sem vann 0-2 útisigur á Burnley á sunnudaginn. Antonio Valencia, Michael Carrick, Marcus Rashford og Henrikh Mkhitaryan koma inn fyrir Ashley Young, Paul Pogba, Jesse Lingard og Wayne Rooney.Fyrir leik: Byrjunarliðin eru komin í hús. Pep Guardiola gerir þrjár breytingar frá tapinu fyrir Arsenal í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á sunnudaginn. Pablo Zabaleta, Aleksandar Kolarov og Raheem Sterling koma inn fyrir Jesús Navas, Gaël Clichy og David Silva sem meiddist í leiknum gegn Arsenal.Fyrir leik: City vann fyrri deildarleik liðanna á Old Trafford með tveimur mörkum gegn einu. United hefndi fyrir tapið með 1-0 sigri í deildabikarnum. Juan Mata skoraði eina mark leiksins.Fyrir leik: Liðin eru í mikilli baráttu um Meistaradeildarsæti en það munar aðeins einu stigi á þeim. Með sigri fer City upp fyrir Liverpool og í 3. sæti deildarinnar. United getur einnig farið upp í 3. sætið en þá þarf liðið að vinna þriggja marka sigur sem er frekar ólíklegt að gerist.Fyrir leik: Góða kvöldið og velkomin í beina lýsingu frá leik Manchester-liðanna, City og United.
Enski boltinn Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti „Það var ekkert í heiminum að fara breytast“ Sport Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Körfubolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Fleiri fréttir Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar Sjá meira