Dönsku S-lestirnar verða án lestarstjóra Atli Ísleifsson skrifar 13. desember 2017 10:12 Mikill fjöldi íbúa Kaupmannahafnar og nágrennis nýtir sér hinar rauðu S-lestir til að komast til og frá vinnu. Wikipedia commons
Dönsku ríkisstjórnarflokkarnir hafa náð samkomulagi við Danska þjóðarflokkinn og De Radikale um að ný kynslóð S-lestanna svokölluðu verði lestarstjóralausar og reksturinn settur í útboð. DR segir frá. Mikill fjöldi íbúa Kaupmannahafnar og nágrennis nýtir sér hinar rauðu S-lestir til að komast til og frá vinnu og er ætlunin að kaupa nýrri tegund af lestum og að tíðni ferða verði mun þéttari en nú er. Mun tíðni ferða aukast um 24 prósent og er gert ráð fyrir að farþegum muni stóraukast. Ekki liggur fyrir um kostnað áætlunarinnar. DSB, ríkislestarfélag Danmerkur, rekur nú S-lestirnar en ríkisstjórnin vill nú opna fyrir aðkomu einkaaðila að rekstrinum. Samkvæmt samkomulagi stjórnarinnar mun rekstur lestaumferðar yfir Eyrarsundi færast til Skånetrafiken í Svíþjóð. Danski samgönguráðherrann Ole Birk Olesen segir að fyrirhugaðar breytingar á rekstri S-lestanna sé sú mesta frá því að þær hófu akstur árið 1934. Jafnaðarmannaflokkurinn, stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, hefur gagnrýnt áætlun ríkisstjórnarinnar og vill meina að hana megi skýra af hugmyndafræði hægriflokkanna frekar en hagkvæmni. Smíði neðanjarðarlestarkerfis Kaupmannahafnar hófst í kringum aldamótin en lestirnar þar eru nú þegar lestarstjóralausar.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Sjá meira