Rahami ákærður fyrir sprengjuárásirnar í New York og New Jersey Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. september 2016 23:35 Rahami var handtekinn í gær. Vísir/AFP
Búið er að ákæra Ahmad Khan Rahami fyrir að hafa komið fyrir sprengjum í New York og New Jersey um liðna helgi en sprengja sem sprakk í Chelsea-hverfinu í New York á laugardag særði tuttugu og níu manns. Áður var búið að ákæra Rahami fyrir tilraun til manndráps á fimm lögreglumönnum þegar hann var handtekinn í bænum Linden í New Jersey í gær. Til átaka kom á milli Rahami og lögreglunnar þar sem Rahami hóf mikla skothríð þegar lögreglumenn komu á vettvang til að handtaka hann. Í ákærunni sem gefin var út í dag er Rahami meðal annars gefið að sök að hafa gjöreyðingarvopn undir höndum og að hafa komið tveimur sprengjum fyrir í Chelsea-hverfinu í New York en önnur þeirra sprakk ekki. Þá er hann einnig ákærður vegna sprengjuárásar í New Jersey en enginn særðist í henni. Rahami er 28 ára Afgani með bandarískan ríkisborgararétt. Faðir hans varaði yfirvöld við syni sínum árið 2014 en í samtali við New York Times segir faðirinn að hann hafi haft samband við Bandarísku alríkislögregluna og lýst yfir áhyggjum vegna sonar síns þar sem hann hafði stungið bróður sinn með hníf. Alríkislögreglan á að hafa fylgst með Rahami í tvo mánuði en síðan ályktað að allt væri í góðu með hann og að hann væri ekki hryðjuverkamaður.
Tengdar fréttir Faðir Rahami varaði lögreglu við syni sínum 2014 Eiginkona Ahmad Khan Rahami er sögð hafa verið handtekin í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. 20. september 2016 19:39 Skammast yfir því að meintur hryðjuverkamaður fái aðhlynningu Donald Trump segir að ástandið ítreki veikt þjóðaröryggi Bandaríkjanna. 20. september 2016 10:45 Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Sjá meira
Faðir Rahami varaði lögreglu við syni sínum 2014 Eiginkona Ahmad Khan Rahami er sögð hafa verið handtekin í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. 20. september 2016 19:39
Skammast yfir því að meintur hryðjuverkamaður fái aðhlynningu Donald Trump segir að ástandið ítreki veikt þjóðaröryggi Bandaríkjanna. 20. september 2016 10:45
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán