Farsa-ummæli Wenger forsíðuefni ensku blaðanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2016 10:30 Arsene Wenger var ekkert í alltof góðu skapi í gær. Vísir/Getty
Arsene Wenger er orðinn afar pirraður á umræðunni um framtíð sína hjá félaginu og kallaði hana farsa í viðtölum eftir tapið á móti Watford í gær. Þetta var fjórða tap Arsenal í síðustu sex leikjum og í fyrsta sinn frá árinu 2002 sem liðið tapar þremur heimaleikjum í röð. Þetta er því versta heimavallartaphrina félagsins í fjórtán ár en franski stjórinn er á því að allar vangaveltur um framtíð sína eigi ekki rétt á sér. Á síðustu vikum hefur Arsenal dottið út úr enska bikarnum, komið sér í vonlausa stöðu í Meistaradeildinni (2-0 undir á móti Barcelona eftir heimaleikinn) og er nú átta stigum á eftir toppliði Leicester í ensku úrvalsdeildinni. „Það sem er í gangi núna er mjög, mjög erfitt fyrir leikmennina að sætta sig við. Dæmið okkur samt í lok tímabilsins," sagði Arsene Wenger. „Nú er á enda löng sigurganga í enska bikarnum og það er leiðinlegt en við viljum einbeita okkur að næsta leik sem er alltaf mikil áskorun. Við erum samt alltaf í miðpunkti einhvers leikrits," sagði Wenger. „Þetta leikrit er samt að breytast í farsa. Við töpuðum leik. Arsenal hefur tapað áður og við mun tapa leik aftur í framtíðinni. Við ætlum að standa saman, komast í gegnum þetta og undirbúa okkur fyrir næsta leik með fulla trú á okkur sjálfum," sagði Wenger. „Stuðningsmennirnir standa á bak við félagið og við viljum berjast fyrir hverjum leik til loka tímabilsins. Þetta snýst ekkert um sjálfstraust. Auðvitað er liðið mitt með nægjanlegt sjálfstraust," sagði Wenger. Wenger skilur því ekki umræðunni um framtíð sína en ensku blöðin skilja aftur á móti ekki í franska stjóranum og viðbrögð hans voru forsíðuefni ensku blaðanna í morgun eins og sjá má hér fyrir neðan.Independent og Daily Star.Mirror og The Sun.
Enski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira