Klopp lætur það ekki pirra sig að vera kallaður mjúki Þjóðverjinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2016 13:00 Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, í leiknum á móti Sunderland. Vísir/Getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, lét ummæli Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Sunderland, ekki fara í taugarnar á sér. Allardyce kallaði hann "soft German" upp á enska tungu eða mjúka Þjóðverjann á íslenskunni. Liverpool vann leikinn 1-0 Klopp reiddist mjög yfir því að Jeremain Lens hjá Sunderland fékk ekki rauða spjaldið fyrir ruddatæklingu á Mamadou Sakho. „Þetta er ekkert vandamál. Fullt af fólki hefur sagt miklu verri hluti um mig en þetta. Þetta er ekki í fyrsta skiptið," sagði Jürgen Klopp á blaðamannafundi aðspurður um viðurnefnið frá Sam Allardyce. „Ef þið horfið bara aftur á þessa tæklingu þá sjáið þið að ég var ekki á neinum villigötum með því að bregðast svona við," sagði Klopp. Hann segir atvikið heyra nú sögunni til. „Mama er á lífi og allt er í lagi. Það er það eina sem ég vil segja um þetta. Ég tek það samt fram að ég var ekki að rífast neitt við bekkinn hjá Sunderland," sagði Klopp. Sigur Liverpool á Sunderland á leikvangi ljóssins kom liðinu upp í sjöunda sæti í töflunni en liðið er nú fimm stigum frá sæti í Meistaradeildinni. Næsti leikur Liverpool er á móti West Ham en Hamrarnir vildu fá Jürgen Klopp sem knattspyrnustjóra í sumar. Slaven Bilic var ráðinn þegar Klopp sagði nei og liðið er að gera flotta hluti undir hans stjórn. „Ég var ekki laus í sumar. Ég er heppinn með það að það hafa fullt af félögum áhuga á því að fá mig. West Ham er góður klúbbur en þetta var ekki réttur tími fyrir mig ekki frekar en hjá hinum félögunum," sagði Klopp og endaði síðan á einni Klopp-klassík. „Hamrarnir (gælunafn West Ham), það er mun betra viðurnefni fyrir mig en mjúkur," sagði Klopp.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira