Enski boltinn

Vonast til þess að fá þjálfarastarf hjá Liverpool á næsta ári

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Gerrard hefur æft með Liverpool undanfarnar vikur á meðan MLS-deildin er í fríi.
Gerrard hefur æft með Liverpool undanfarnar vikur á meðan MLS-deildin er í fríi. Vísir/getty
Steven Gerrard, fyrrum fyrirliði Liverpool og núverandi leikmaður LA Galaxy í MLS-deildinni greindi frá því í gær að næstkomandi tímabil í MLS-deildinni yrði líklegast hans síðasta sem leikmaður.

Vonast hann til þess að fá þjálfarastarf hjá félaginu sem hann ólst upp hjá þegar ferlinum lýkur en hann er þessa dagana að afla sér þjálfararéttinda.

Gerrard sem kom upp úr unglingastarfi Liverpool og lék 710 leiki fyrir félagið er enn í guðatölu hjá stuðningsmönnum félagsins.

„Ég hef ekki tekið neina ákvörðun en ég geri ráð fyrir því að þetta verði síðasta tímabil mitt sem leikmaður. Ég hef rætt þetta við Jurgen Klopp og hann sagði að það væri áhugi fyrir því að fá mig til starfa hjá félaginu,“ sagði Gerrard sem sá eftir því að hafa ekki íhugað þetta fyrr.

„Ég sé eftir því að hafa ekki hellt mér út í þetta fyrr á ferlinum. Það fór töluverður tími með enska landsliðinu bara í að slappa af upp á hóteli og horfa á þætti þegar ég gat verið að taka þjálfararéttindin. Ég vonast til þess að vera kominn langleiðina með þjálfararéttindin um næstu áramót þegar MLS-tímabilið klárast.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×