Þorvaldur: Ásgeir og Arnór spiluðu með stærri liðum en Gylfi og unnu titla Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. janúar 2016 12:30
Gylfi Þór Sigurðsson hefur spilað vel að undanförnu fyrir Swansea og virðist vera að komast í gírinn, en hann skoraði eina mark liðsins í 2-1 tapi gegn Manchester United um síðustu helgi. Gylfi Þór er búinn að skora þrjú mörk á tímabilinu og gefa þrjár stoðsendingar en á sama tíma í fyrra var hann búinn að skora þrjú mörk og gefa átta stoðsendingar.Sjá einnig:Gylfi Þór fékk hæstu einkunn Swansea á Old Trafford „Þetta er ekki dæmigert Gylfa-mark. Hann skorar ekki mörg með skalla en þarna er hann klókur. Hann var virkilega góður í þessum leik og í leiknum á undan. Í síðustu þremur leikjum hefur hann verið virkilega góður og virðist vera finna sitt gamla form,“ sagði Arnar Gunnlaugsson um Gylfa í Messunni á Stöð 2 Sport 2 HD í gærkvöldi. Hjörvar Hafliðason, Messustjóri, benti á það að Gylfi væri á síðastliðnum 18 mánuðum búinn að skora á móti Manchester United í tvígang, Arsenal, Liverpool og Tottenham. Honur líður því vel í stóru leikjunum. Hjörvar sagði svo að Gylfi hefði gert það sem aðrir bestu leikmenn Íslandssögunnar gerðu aldrei, en það er að koma Íslandi á stórmót. Nefndi hann þar til menn á borð við Arnór Guðjohnsen, Eið Smára og Ásgeir Sigurvinsson. Gylfi var besti leikmaður íslenska landsliðsins í undankeppni EM 2016, en hann skoraði sex mörk og var valinn í úrvalsliðs undankeppninnar. „Hann var lykilmaðurinn ásamt nokkrum öðrum að koma okkur áfram á EM. Munurinn á honum og svo Arnóri og Ásgeiri er að þeir spiluðu fyrir stærri lið og unnu titla,“ sagði Þorvaldur Örlygsson um samanburðinn á þessum fótboltasnillingum. Alla umræðuna þar sem einnig er rætt um kjör íþróttamanns ársins má sjá í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Íslenski boltinn Fleiri fréttir Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Sjá meira