Jordon Ibe hetja Liverpool á móti Stoke | Sjáið sigurmarkið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. janúar 2016 21:45 Jordon Ibe fagnar sigurmarki sínu. Vísir/Getty
Jordon Ibe tryggði Liverpool 1-0 útisigur á Stoke City í fyrri undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum en spilað var á Britannia-leikvanginum í kvöld. Ibe skoraði eina mark leiksins á 37. mínútu eftir að hann hafði komið inná sem varmaður eftir aðeins átján mínútna leik. Seinni undanúrslitaviðureignin er á milli Everton og Manchester City og fer fyrri leikur þeirra fram á Goodison Park á morgun. Liverpool missti tvo leikmenn meidda af velli í fyrri hálfleiknum. Jordon Ibe kom inn á fyrir Philippe Coutinho á 18. mínútu eftir að Brasilíumaðurinn tognaði aftan í læri. Dejan Lovren fór líka tognaður af velli á 34. mínútu og kom James Milner inná fyrir hann. James Milner fór þó ekki í miðvörðinn heldur inn á miðjuna og Lucas Leiva datt aftur í vörnina við hlið Kolo Toure. Lucas Leiva stóð sig vel í nýrri stöðu í vörninni og miðað við ástandið á miðvörðum liðsins er hann líklegur til að spila meira þar í næstu leikjumn. Jordon Ibe var búinn að spila í 19 mínútur þegar hann skoraði og kom Liverpool yfir á 37. mínútu leiksins. Joe Allen gaf stoðsendinguna á Jordon Ibe en ætlaði samt að skjóta sjálfur eftir laglegan undirbúning Adam Lallana. Boltinn datt fyrir fætur Jordon Ibe sem átti ekki í miklum vandræðum með að skora enda vörn Stoke kominn út úr öllu skipulagi. Liverpool var betra liðið í fyrri hálfleiknum og forystan því sanngjörn. Stoke-liðið beit meira frá sér í seinni hálfleiknum en Liverpool fékk líka færi til að bæta við mörkum. Pressan jókst þó þegar leið á ekki síst á síðustu tuttugu mínútunum þegar Liverpool-menn voru farnir að spila upp meira upp á það að halda fengnum hlut. Liverpool lenti þó ekki í miklum vandræðum í lokin, spilaði skynsamlega og gaf Stoke-liðinu ekki mörg færi á sér. Jonathan Walters fékk þó fínt færi til að jafna metin í uppbótartíma. Seinni leikur Liverpool og Stoke fer síðan fram á Anfield og verður hann spilaður þriðjudagskvöldið 26. janúar næstkomandi. Það er síðan stutt í næsta bikarleik hjá Liverpool því liðið mætir Exeter í 3. umferð enska bikarsins á föstudaginn. Sigurmark Jordon Ibe á móti Stoke City
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira