Martínez vill Meistaradeildina frekar en bikara Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. janúar 2016 17:00 Roberto Martínez hefur stýrt Everton frá 2013. vísir/getty
Roberto Martínez, knattspyrnstjóri Everton, vill miklu frekar komast í Meistaradeildina heldur en að vinna bikarkeppnir. Everton tekur á móti Manchester City í kvöld í fyrri leik liðanna í undanúrslitum deildabikarsins en Martínez gæti orðið fyrsti maðurinn til að koma með bikar á Goodison Park síðan 1995. Everton er í ellefta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 27 stig en hefur þó tapað færri leikjum en Crystal Palace, Liverpool, Watford og Stoke sem eru öll fyrir ofan það á töflunni. Martínez nýtur þess að stýra nokkrum af bestu ungu leikmönnum deildarinnar, mönnum á borð við Romelu Lukaku, John Stones, Ross Barkley og Gerard Deulofeu. Þó Martínez vonist til að vera maðurinn sem bindur enda á 21 árs eyðimerkurgöngu Everton þá telur hann að einstaka bikarar muni ekki halda þessum ungu stjörnum í Guttagarði. „Ég tel að vinna bikar haldi ekki ungu leikmönnunum okkar hérna. Það að komast í Meistaradeildina gæti hjálpað okkur að halda í þá,“ segir Martínez. „Ég er ekki að segja að ég vilji ekki vinna titla því um það snýst þetta félag og metnaðurinn er alltaf að vinna eitthvað. Stóra markmiðið er samt að ná einu af efstu fjórum sætunum,“ segir Roberto Martínez.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Enski boltinn Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira