Nítjánda mark Lukaku tryggði Everton sigur á Manchester City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. janúar 2016 21:54 Romelu Lukaku skorar hér sigurmarkið. Vísir/Getty
Romelu Lukaku var áfram á skotskónum í kvöld þegar hann tryggði Everton 2-1 sigur á Manchester City í kvöld í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins. Sigurmark Lukaku, hans tólfta mark í síðustu tólf leikjum Everton, kom tólf mínútum fyrir leikslok og aðeins tveimur mínútum eftir að City-menn höfðu jafnað metin. Leikur kvöldsins fór fram á Goodison Park en seinni leikur liðanna verður síðan spilaður á Ethiad-leikvanginum, heimavelli Manchester City. Sá leikur fer fram 27. janúar næstkomandi en liðin mætast áður en að kom kemur því framundan er leikur þeirra í ensku úrvalsdeildinni. Liðin frá Bítlaborginni, Liverpool og Everton, unnu því bæði eins marks sigur í fyrri undanúrslitaviðureignum sínum en Liverpool vann 1-0 útisigur á Stoke í gær. Everton var búið að koma boltanum tvisvar í mark Manchester City þegar liðið komst yfir í lok fyrri hálfleiksins. Gareth Barry skoraði skallamark á 37. mínútu eftir sendingu Leighton Baines en var dæmdur rangstæður. Romelu Lukaku sendi boltann líka í markið fjórum mínútum seinna en markið var líka dæmt af vegna rangstæðu. Markið sem fékk að standa kom síðan á lokamínútu hálfleiksins. Ramiro Funes Mori kom þá boltanum yfir línuna eftir að hann fylgdi eftir skoti Ross Barkley. Mori var ekki rangstæður en það var hinsvegar Romelu Lukaku sem var nálægt því að trufla markvörðinn. Þannig var staðan þar til á 76. mínútu þegar Manchester City jafnaði eftir frábæra skyndisókn. Jesús Navas fékk þá boltann á endanum eftir frábæra stoðsendingu frá Sergio Agüero og Navas kom mörgum á óvart með því að klára af yfirvegun. Staðan var bara jöfn í tvær mínútur því Romelu Lukaku kom Everton aftur yfir á 78. mínútu með skallamarki eftir sendingu frá Gareth Barry. Romelu Lukaku meiddist við það að skora þetta mark og þurfti fljótlega að yfirgefa völlinn. Stuðningsmenn Everton liggja nú á bæn að þessi meiðsli hans séu ekki alvarleg.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Enski boltinn Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira