Enski boltinn

Neymar: Coutinho myndi henta Barcelona vel

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Coutinho í leik með brasilíska landsliðinu.
Coutinho í leik með brasilíska landsliðinu. Vísir/Getty
Brasilíski framherjinn Neymar vonast til þess að landi sinn, Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool leiki með Barcelona einn daginn því hann henti liðinu vel.

Coutinho er verið eini leikmaður Liverpool sem hefur byrjað tímabilið af krafti en hann tryggði liðinu þrjú stig í fyrstu umferð með glæsilegu marki í 1-0 sigri Liverpool á Stoke á Britianna vellinum.

Hefur hann áður verið orðaður við Barcelona og telur að Neymar sem þekkir Coutinho vel eftir að hafa leikið með honum í unglingalandsliðum að hann myndi henda liðinu vel.

Aðspurður hvaða brasilíska leikmann hann væri til í að sjá hjá félaginu var hann ekki lengi að svara.

„Það eru margir brasilískir leikmenn í fremstu röð núna en sá sem ég er hrifnastur af og held að gæti slegið í gegn hérna er Coutinho. Hann hugsar leikinn eins og leikmenn Barcelona,“ sagði Neymar en Coutinho myndi hitta fyrir hjá Barcelona fyrrum liðsfélaga sinn hjá Liverpool, Luis Suárez.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×