Ferguson: Mistök hjá Moyes að reka Phelan Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. september 2015 11:30 Ferguson og Moyes mættust margoft sem stjórar Man Utd og Everton. vísir/getty
David Moyes hefði ekki átt að reka Mike Phelan úr starfi aðstoðarþjálfara þegar hann tók við Manchester United sumarið 2013. Þetta segir Sir Alex Ferguson í nýrri bók sinni, Leading, sem kemur út á morgun. Moyes tók við United þegar Ferguson steig til hliðar en eitt af hans fyrstu verkum var að skipta algjörlega um þjálfarateymi hjá félaginu. Það þýddi að Phelan, meðal annarra, missti vinnuna en hann var aðstoðarþjálfari Ferguson síðustu ár hans með United. „Moyes hefði eflaust gert margt öðruvísi ef hann fengi tækifæri til,“ segir Ferguson í bók sinni. „Eins og að halda Phelan sem hefði getað hjálpað honum og miðlað af reynslu sinni af félaginu eins og Ryan Giggs er að gera fyrir Louis van Gaal í dag. „Það er engin ástæða til að breyta út af vana sem leikmenn eru ánægðir með. Það hefur þveröfug áhrif, hefur slæm áhrif á móralinn innan liðsins og fær leikmenn til að efast um nýja manninn og hans áætlanir. Leiðtogi sem kemur inn í nýjar aðstæður þarf að hemja sig þegar kemur að því að sýna manndóm sinn.“ Moyes entist aðeins 34 deildarleiki í starfi hjá United áður en hann var rekinn og Giggs tók tímabundið við liðinu. Í bók Ferguson kemur einnig fram að Moyes hafi verið langt frá því að vera hans fyrsti kostur til að taka við liðinu sem hann stýrði í 26 ár.Mike Phelan var lengi hjá United, fyrst sem leikmaður og svo sem hluti af þjálfarateyminu.vísir/getty
Enski boltinn Mest lesið Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Handbolti Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Íslenski boltinn Skýr í svörum aðspurður um möguleika KR á Íslandsmeistaratitli Íslenski boltinn Kýldur kaldur en ætlar ekki að kæra Sport Uppgjörið: ÍBV - Víkingur Reykjavík 3-2 | Nýliðarnir með endurkomusigur Íslenski boltinn Gíraður í Reykjavíkurslag: „Hlaupum á Val á hundrað kílómetra hraða“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjá meira