Ólíkt Mourinho þá gengur allt upp hjá stjóra kvennaliðs Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. desember 2015 16:15 Jose Mourinho og Emma Hayes. Vísir/Getty
Það er ólíkt farið með knattspyrnustjórum karla- og kvennaliðs Chelsea í fótbolta. Á sama tíma og það gengur ekkert upp hjá karlaliðinu þá fær knattspyrnustjóri kvennaliðsins hver verðlaunin á fætur öðrum. Chelsea-liðin eru bæði ríkjandi Englandsmeistarar en það er orðið nokkuð ljóst að karlaliðið ver ekki titilinn sinn þótt að tímabilið sé ekki einu sinni hálfnað. Jose Mourinho hefur horft upp á lið sitt tapa 8 af fyrstu fimmtán leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og framundan er leikur í kvöld upp á líf eða dauða í Meistaradeildinni. Margir enskir fjölmiðlar eru á því að Mourinho verði að vinna leikinn á móti Porto í kvöld og komast í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar svo að hann fái að halda starfi sínu sem knattspyrnustjóri Chelsea. Emma Hayes gerði kvennalið Chelsea að tvöföldum meisturum á síðustu leiktíð en liðið endaði meðal annars tveggja ára sigurgöngu Katrínar Ómarsdóttur og félaga hennar í Liverpool. Auk þessa titla þá var Emma Hayes valin á dögunum besti stjóri ensku kvennadeildarinnar en í dag bætti hún við verðlaunum sem þjálfari ársins í kvennaboltanum hjá enska knattspyrnusambandinu og sérstökum verðlaunum fyrir besta afrek ársins. Kvennalið Chelsea var að vinna sín fyrstu stóru verðlaun á árinu 2015 en hin 38 ára gamla Emma Hayes tók við liðinu árið 2012. Emma Hayes hafði áður verið aðstoðarmaður hjá kvennaliði Arsenal á árunum 2006 til 2008 (Arsenal vann tvöfalt öll árin) og þjálfað bandaríska liðið Chicago Red Stars frá 2008 til 2010.
Enski boltinn Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira