Enski boltinn

Stjörnur Arsenal sýndu á sér nýjar hliðar | Myndbönd

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Sanchez var öflugur á píanóinu.
Sanchez var öflugur á píanóinu. Vísir/getty
Alexis Sanchez og Nacho Monreal sýndu á sér nýjar hliðar í myndbandi sem Arsenal birti fyrir jólin en þar slógust þeir í lið með tékkneska markverðinum Petr Cech og léku saman jólalag.

Cech sem er duglegur að deila með aðdáendum sínum myndböndum af sér að tromma hin ýmsu lög var mættur til þess að taka í trommurnar.

Skömmu síðar létu liðsfélagarnir sjá sig og ákváðu að taka þátt en myndband af þessu má sjá hér fyrir neðan.

Þá tók þýski miðvörðurinn Per Mertesacker lagið í tilefni jólanna en myndbönd af þessu má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×