Erlent

iPad Frans páfa seldur á fjórar milljónir

Atli Ísleifsson skrifar
Á bakhlið tölvunnar er að finna merki Frans páfa og Vatikansins.
Á bakhlið tölvunnar er að finna merki Frans páfa og Vatikansins. Vísir/AFP
iPad spjaldtölva sem á að hafa verið í eigu Frans páfa seldist í gær á uppboði í Úrúgvæ á 30.500 Bandaríkjadala eða rétt rúmar fjórar milljónir króna.

Að sögn talsmanns uppboðshaldarans Castells barst hæsta boð í síma.

Spjaldtölvan komst fyrst í fréttirnar á síðasta ári þegar Frans páfi veitti einum af prestum landsins hana að gjöf.

Presturinn sem fékk tölvuna að gjöf afhenti hana síðar úrúgvæskum skóla. Forsvarsmenn skólans tóku nýverið ákvörðun um að selja hana á uppboði til að safna fé fyrir skólann.

Á bakhlið tölvunnar er að finna merki Frans páfa og Vatikansins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×