Íslenskar mæðgur rændar á Ítalíu: Tæmdu bílinn á innan við mínútu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. apríl 2015 13:00 Mæðgurnar Hrefna Bachmann og Margrét Þorsteinsdóttir áttu sér einskis ills von þegar þær voru á leiðinni til Mílanó að heimsækja dóttur Hrefnu. Mynd/Hrefna Bachmann
Hrefna Bachmann, Íslendingur sem búsett er í Zurich í Sviss, lenti í þeirri óskemmtilegri lífsreynslu síðastliðinn laugardag að vera rænd þar sem hún var á ferðalagi á Ítalíu. Hún var ásamt móður sinni, Margréti Þorsteinsdóttur, á leiðinni í heimsókn til dóttur sinnar sem er við háskólanám í Mílanó. Þær áttu skammt eftir á áfangastað þegar Hrefna varð vör við að það var sprungið dekk á bílnum. „Það var ekki hægt að stoppa neins staðar á umferðargötunni þar sem við vorum svo ég fer inn í hliðargötu, stoppa þar og fer út úr bílnum til að athuga með dekkið,“ segir Hrefna í samtali við Vísi.Þjófurinn bauðst fyrst til að aðstoða þær Hrefna segir að þá hafi hún labbað beint í fangið á manni um þrítugt sem var snyrtilega klæddur og bauðst til að aðstoða hana við að laga dekkið en aftara dekkið farþegamegin var sprungið. Mamma Hrefnu beið í bílnum. „Hann er að reyna að benda mér á dekkjaverkstæði sem er þarna rétt hjá en ég sé ekki neitt verkstæði nálægt. Þegar ég lít undan fer svo maðurinn og dregur mömmu út úr bílnum. Þá koma til viðbótar annar fullorðinn maður og svona 10 ára gamall strákur og þeir byrja bara að hreinsa út úr bílnum.“ Þjófarnir gengu fumlaust til verks og tók þetta allt innan við mínútu að sögn Hrefnu. Allt var tekið sem var í farþegarými bílsins. Hrefna segist hafa verið með eina litla tösku í skottinu en þjófarnir létu hana eiga sig.Hrefna segist ekki hafa upplifað lögregluna á Ítalíu sem sérstaklega hjálplega.Mynd/Hrefna BachmannGæti verið tjón upp á allt að tvær milljónir „Þeir tóku ferðatöskurnar okkar sem voru fullar af dóti, seðlaveskin okkar einnig, tvo síma, vegabréfið hennar mömmu, svissneska skilríkið mitt, Ipad og myndavél svo eitthvað sé nefnt. Ég veit ekki nákvæmlega hversu mikið tjónið er en ætli það sé ekki um 1,5-2 milljónir,“ segir Hrefna. Þjófarnir reyndu skömmu síðar að nota kortin þeirra mæðgna í hraðbönkum en án árangurs. Þeim tókst hins vegar að nota eitt kortið til að kaupa flugmiða. Hún segist ekki strax hafa gert sér grein fyrir því að maðurinn sem bauðst til að hjálpa henni hafi verið í slagtogi með hinum manninum og drengnum. Mamma hennar hafi hins vegar séð þremenningana skömmu fyrir ránið.Konur sem eru einar á ferð týpískt „target“ „Lögreglumennirnir sem komu á staðinn sögðu okkur að þetta væri að verða æ algengara, það er að þjófar skeri á dekk bíla, bjóðist svo til að aðstoða ökumanninn en steli svo öllu steini léttara úr bílnum. Þeir sögðu okkur einnig að við værum týpískt „target“; konur sem eru einar á ferð, á nýlegum bíl með útlenska númeraplötu. Ég vil því bara brýna fyrir Íslendingum sem eru á ferðalagi að fara að öllu með gát því það er til dæmis ekki óalgengt að fólk leigi bíl í einu landi og keyri svo um Evrópu.“ Aðspurð hvort hún sé bjartsýn á að fá eitthvað af eigum sínum til baka segir hún svo ekki vera. Hún segist ekki hafa upplifað það að lögreglan á Ítalíu væri neitt sérstaklega hjálpleg. Hrefna hafi til að mynda þurft að hringja tvisvar eftir aðstoð og enginn hafi komið fyrr en 20 mínútum eftir ránið. „Þá komu þrír lögreglubílar á staðinn en þjófarnir voru löngu farnir. Ég hafði reynt að hlaupa á eftir þeim en náði þeim ekki. Á meðan lögreglan var á staðnum var ég í beinu sambandi við bankann og þeir sögðu mér nákvæmlega í hvaða hraðbanka mennirnir væru að reyna að taka út pening. Ég spurði þá lögreglumennina hvort þeir vildu ekki senda einhvern þangað en þeir voru ekki mikið að stressa sig á því.“Lögreglan sagði mæðgunum að það sé að verða æ algengara að þjófar skeri á dekk bíla, bjóðist svo til að aðstoða ökumanninn en steli svo öllu steini léttara úr bílnum.Mynd/Hrefna BachmannLeiðinlegt að líða eins og maður geti ekki treyst neinum Hvorki Hrefnu né mömmu hennar varð meint af en þær voru skiljanlega í sjokki og eru nú mjög varar um sig. Hrefna segir líka leiðinlegt að nú líði henni eins og hún geti ekki treyst neinum. Seinustu dagar hafi svo farið í alls konar pappírsvinnu en mæðgurnar dvöldu í tvær nætur hjá dóttur Hrefnu og komu aftur til Sviss á mánudaginn. „Nú er ég bara að vinna í því að fá vegabréf fyrir mömmu því hún er náttúrulega vegabréfslaus og fer heim á laugardaginn. Svo er ég að skoða með tryggingunum hversu mikið tjónið er og hvað við mamma fáum bætt. Ég er tryggð hérna úti en mamma hjá Tryggingamiðstöðinni heima og starfsfólkið þar hefur verið alveg frábært. Það borgar sig greinilega að vera vel tryggður. Annars vil ég bara ítreka það að fólk fari varlega á ferðalögum því maður veit aldrei hvað getur gerst.“
Mest lesið Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Innlent Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Innlent Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Innlent „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Innlent Fleiri fréttir Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Innflutningi stýrt frá Litla-Hrauni Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út „Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Ræða við vitni og hraðakstur til skoðunar Bein útsending: Færri börn undir þrettán ára á TikTok „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Sérhæfð móttaka Landspítala fær nafn Bryndísar Klöru Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Hafi tekið barnsmóður sína hálstaki Fjöldahandtökur á Íslandi og prófessor varar við tengingu bóta við vísitölu Bein útsending: Einföldun Evrópuregluverks Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Nálgumst 400 þúsund og um átján prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Færri krakkar á samfélagsmiðlum en fleiri vingast við gervigreind Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Tæp fjórtán prósent þjóðarinnar búsett erlendis Netmiðlar myndu flestir liggja niðri á Íslandi Hættir í Samfylkingunni og gengur til liðs við nýjan flokk fyrir kosningar Skora á borgina að virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir „þrálátar deilur“ Óvíst hversu mörg börn sækja ekki skóla þrátt fyrir skólaskyldu Ók bifreið utan í þrjár aðrar á gatnamótum „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Sjá meira