Enski boltinn

Southampton skellti Arsenal og kom í veg fyrir að þeir færu á toppinn | Sjáðu mörkin

Southampton skellti Arsenal í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Með sigri gat Arsenal farið á toppinn, en allt annað var uppi á teningnum og lokatölur 4-0 sigur Dýrlinganna.

Fyrsta mark leiksins kom á nítjándu mínútu og það var af dýrari gerðinni. Cuco Martina fékk þá boltann fyrir utan teiginn og þrumaði boltanum utanfótar í fjærhornið. Bang og mark - og staðan orðin 1-0 fyrir heimamönnum.

Staðan var 1-0 í hálfleik, en síðari hálfleikur var tíu mínútna gamall þegar Shane Long tvöfaldaði forystuna eftir laglega sendingu frá Sadio Mane.

Útlitið dökkt fyrir Arsenal og Jose Fonte skoraði þriðja mark Dýrlinganna á 69. mínútu og þá héldu flestir að veislu Southampton væri lokið.

Svo var ekki. Shane Long skoraði annað mark sitt og fjórða mark Southampton eftir góða sendingu frá Dusan Tadic. Martröð hjá Arsenal. Lokatölur 4-0 sigur Southampton.

Þetta var fyrsti sigur Southampton í deildinni síðan 7. nóvember, en þeir eru í tólfta sætinu með 24 stig. Arsenal er í öðru sætinu með 36 stig, tveimur stigum frá Leicester.

Shane Long kemur Southampton í 2-0: Fyrirliðinn Jose Fonte kominn á blað og staðan 3-0: Shane Long, 4-0:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×