Erfiðasta jóladagskráin hjá Bournemouth og Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2015 12:00 Branislav Ivanovic og Willian hjá Chelsea. Vísir/Getty
Blaðamenn Sky Sports hafa farið yfir leiki ensku úrvalsdeildarliðinna yfir jól og áramótin og reiknað út hvaða lið í deildinni eiga erfiðustu leikina yfir hátíðirnar í ár. Þetta gætu orðið erfið jól fyrir nýliða Bournemouth og Watford og þá verður þetta ekki auðveld byrjun fyrir Guus Hiddink sem knattspyrnustjóra Chelsea. Það er bara Bournemouth sem á erfiðari leiki á pappírnum. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City eru enn ekki búnir að fá nýjan stjóra og það er á herðum Alan Curtis að stýra liðinu í gegnum fjórðu erfiðustu leikjadagskrá jólahátíðarinnar. Lið eins og Leicester City, Manchester City, Liverpool og Stoke City eru um miðjan listann en það eru nokkur lið sem ættu að geta safnað vel af stigum ef litið er á það í hvaða sætum næstu mótherjar liðsins eru. Lærisveinar Alan Pardew í Crystal Palace eiga nefnilega léttustu leikina á pappírnum en Palace-liðið mætir Bournemouth, Swansea og Chelsea yfir hátíðirnar. Það sem kerfi Sky Sports reiknar þó ekki með er að Bournemouth hefur unnið þrjá leiki í röð og það má búast við að Chelsea-liðið sé vaknað eftir Mourinho-martröðina. Þetta er lítur því kannski alltof vel út á pappírnum. Arsenal vann mikilvægan sigur á Manchester City í gær og ætti að geta fengið mörg stig yfir hátíðarnar þegar liðið mætir Southampton á útivelli og svo Bournemouth og Newcastle heima. Louis Van Gaal fær líka tækifæri til að koma Manchester United liðinu í gang en aðeins West Bromwich og Crystal Palace eru með léttari leikjaröð en United-liðið um þessi jól. Manchester United mætir samt Chelsea í athyglisverðum leik tveggja vonbrigðaliða 28. desember og fær síðan Swansea í heimsókn en Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hafa reynst afar erfiðir í síðustu leikjum liðanna.Gylfi Þór Sigurðsson.Vísir/GettyErfiðasta jóladagskráin í ensku úrvalsdeildinni:Bournemouth 26. desember - Crystal Palace (heima): 6. sæti 28. desember - Arsenal (úti): 2. sæti 2. janúar - Leicester (úti): 1. sætiMeðalstaða mótherja: 3Chelsea 26. desember - Watford (heima): 7. sæti 28. desember - Man Utd (úti): 5. sæti 3. janúar - Crystal Palace (úti): 6. sætiMeðalstaða mótherja: 6Watford 26. desember - Chelsea (úti): 15. sæti 28. desember - Tottenham (heima): 4. sæti 2. janúar - Man City (heima): 3. sætiMeðalstaða mótherja: 7,3Swansea 26. desember - West Brom (heima): 13. sæti 28. desember - Crystal Palace (úti): 6. sæti 2. janúar - Man Utd (úti): 5. sætiMeðalstaða mótherja: 8Newcastle 26. desember - Everton (heima): 10. sæti 28. desember - West Brom (úti): 13. sæti 2. janúar - Arsenal (úti): 2. sætiMeðalstaða mótherja: 8,3Leikmenn Arsenal.Vísir/GettyLéttasta jóladagskráin í ensku úrvalsdeildinni:Arsenal 26. desember - Southampton (úti): 12. sæti 28. desember - Bournemouth (heima): 14. sæti 2. janúar - Newcastle (heima): 17. sætiMeðalstaða mótherja: 14,3Aston Villa 26. desember - West Ham (heima): 8. sæti 28. desember - Norwich (úti): 16. sæti 2. janúar - Sunderland (úti): 19. sætiMeðalstaða mótherja: 14,3Manchester United 26. desember - Stoke (úti): 11. sæti 28. desember - Chelsea (heima): 15. sæti 2. janúar - Swansea (heima): 18. sætiMeðalstaða mótherja: 14,8West Brom 26. desember - Swansea (úti): 18. sæti 28. desember - Newcastle (heima): 17. sæti 2. janúar - Stoke (heima): 11. sætiMeðalstaða mótherja: 15,3Crystal Palace 26. desember - Bournemouth (úti): 14. sæti 28. desember - Swansea (heima): 18. sæti 3. janúar - Chelsea (heima): 15. sætiMeðalstaða mótherja: 15,6 Það er síðan hægt að sjá allan listann á Sky Sports með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Handbolti Fleiri fréttir Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Sjá meira