Arsenal með 16 af 18 stigum í húsi á móti efstu sjö liðunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2015 11:00 Olivier Giroud og Aaron Ramsey fagna í gær. Vísir/Getty
Arsenal vann 2-1 sigur á Manchester City í lokaleik 17. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar og minnkaði forskot Leicester City á toppnum í tvö stig. Arsenal treysti stöðu sína í öðru sæti deildarinnar og er nú með fjórum stigum meira en Manchester City sem situr í næsta sæti fyrir neðan. Þessi sigur Arsenal í gærkvöldi þýðir jafnframt að Arsenal-liðið hélt áfram að safna stigum á móti liðunum sem eru í efstu sætum ensku úrvalsdeildarinnar. Þetta lítur mjög vel út hjá Arsenal-mönnum og margir eru á því að þetta sé besti möguleiki félagsins á titli í langan tíma.Sjá einnig:Arsenal vann Man. City og verður í öðru sæti yfir jólin Liðið hefur alls náð í 16 af 18 mögulegum stigum í leikjum sínum á móti liðunum sem nú skipa sjö efstu sæti deildarinnar. Það var aðeins í 1-1 jafnteflinu á móti nágrönnum þeirra í Tottenham sem öll þrjú stigin komu ekki í hús. Arsenal-liðið er ennfremur með 11 mörk í plús í þessum sex leikjum og hefur skorað í þeim rétt tæp 3 mörk að meðaltali í leik. Lærisveinar Arsene Wenger eru því til alls líklegir nú þegar þeir reyna að vinna sinn fyrsta meistaratitil frá árinu 2004. Alexis Sánchez lék ekki með í gær en hann hefur skorað 6 mörk í leikjum á móti efstu sjö liðunum en Mesut Özil, sem lagði upp bæði mörkin í gær, hefur alls gefið 8 stoðsendingar í þessum sex leikum.Theo Walcott skoraði flott mark í gær.Vísir/GettyLeikir Arsenal á móti liðum í efstu sjö sætunum í ensku úrvalsdeildinni:1. Leicester City 5-2 sigur á útivelli 26. september (Alexis Sánchez 3, Theo Walcott, Olivier Giroud)2. Arsenal3. Manchester City 2-1 sigur á heimavelli 21. desember (Theo Walcott, Olivier Giroud)4. Tottenham 1-1 jafntefli á heimavelli 8. nóvember (Kieran Gibbs - Mesut Özil)5. Manchester United 3-0 sigur á heimavelli 4. október (Alexis Sánchez 2, Mesut Özil)6. Crystal Palace 2-1 sigur á útivelli 16. ágúst (Olivier Giroud, sjálfsmark7. Watford 3-0 sigur á útivelli 17. október (Alexis Sánchez, Olivier Giroud, Aaron Ramsey)Alexis Sánchez.Vísir/GettySamtals á móti topp sjö: 6 leikir 5 sigrar, 1 jafntefli og 0 töp 16 stig af 18 mögulegum 89 prósent stiga í húsi +11 í markatölu 16 mörk skoruð 5 mörk fengin á sigMörk leikmanna: Alexis Sánchez 6 Olivier Giroud 4 Theo Walcott 2 Mesut Özil 1 - 8 stoðsendingar Kieran Gibbs 1 Aaron Ramsey 1 Sjálfsmark mótherja 1
Enski boltinn Mest lesið Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira