Origi bjargaði stigi fyrir Liverpool | Sjáðu mörkin og tæklinguna hjá Gardner Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. desember 2015 18:00 Jonas Olsson kemur West Brom í 1-2. Vísir/Getty
Liverpool varð að sætta sig við jafntefli gegn West Brom í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur 2-2. Lærisveinar Jürgens Klopp byrjuðu leikinn betur og komust yfir á 21. mínútu þegar fyrirliðinn Jordan Henderson skoraði af stuttu færi eftir að Adam Lallana skallaði boltann til hans. Forystan entist aðeins í níu mínútur því eftir hálftíma leik jafnaði Craig Dawson metin eftir hornspyrnu Chris Brunt og mistök Simon Mignolet í marki Liverpool. Undir lok fyrri hálfleiks hélt Jonas Olsson að hann hefði komið West Brom yfir en markið var réttilega dæmt af vegna rangstöðu þótt Craig Pawson, dómari leiksins, hafi verið lengi að kveða dóminn upp. Olsson var ekki hættur og á 73. mínútu skallaði hann hornspyrnu Brunt í netið. Það mark fékk að standa og virtist ætla að duga West Brom til sigurs. En á sjöttu mínútu uppbótartíma jafnaði varamaðurinn Divock Origi metin þegar hann skaut í varnarmann gestanna og inn og þar við sat. Hátt í tíu mínútum var bætt við venjulegan leiktíma vegna meiðsla Dejan Lovren en Craig Gardner braut illa á króatíska miðverðinum á 74. mínútu. Brotið var ljótt en Gardner fékk ekki einu sinni gult spjald frá Pawson. Liverpool er í 9. sæti deildarinnar með 24 stig en West Brom er í því 13. með 20 stig. Liverpool 1-0 West Brom Liverpool 1-1 West Brom West Brom kemst yfir en markið dæmt af vegna rangstöðu Liverpool 1-2 West Brom Gardner brýtur illa á Lovren Liverpool 2-2 West Brom
Enski boltinn Mest lesið Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni Íslenski boltinn Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Enski boltinn Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Leik lokið: FH - KA 5-0 | FH pakkaði KA saman Íslenski boltinn Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Enski boltinn Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Messi slær enn eitt metið Fótbolti „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Íslenski boltinn Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Enski boltinn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Enski boltinn Fleiri fréttir Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Sjá meira