„Ferguson er bara vel við þá sem hlýða honum“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. september 2015 08:45 Sir Alex Fergson er ekki vel við Mino Raiola. vísir/gettu
Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester united, lætur Mino Raiola, umboðsmann Pauls Pogba, heyra það í nýrri bók sinni, Leading. Í bókinni reynir hann að útskýra hvers vegna Paul Pogba yfirgaf Manchester United 19 ára gamall árið 2012, en nokkuð ljóst er að það voru ein mestu mistök Skotans. United fékk aðeins 800.000 pund fyrir strákinn á þeim tíma, en hann er nú þrefaldur Ítalíumeistari með Juventus og var kjörinn besti ungi leikmaðurinn á HM 2014. Ferguson gagnrýndi Pogba fyrir virðingarleysi þegar hann yfirgaf félagið fyrir þremur árum, en í nýju bókinni segir hann umboðsmanninn Mino Raiola eiga stóra sök í máli.Mino Raiola er umboðsmaður Pogba og Balotelli.vísir/gettyFerguson getur líka haft rangt fyrir sér „Það eru einn til tveir umboðsmenn í fótboltanum sem mér líkar ekki við og Mino Raiola er einn af þeim,“ segir Ferguson í bókinni. „Ég treysti honum ekki frá fyrstu sekúndu. Paul var á þriggja ára samningi og við hann var hægt að bæta einu ári. En síðan birtist Raiola og fyrsti fundur okkar var stórslys.“ „Við vorum eins og olía og vatn. Eftir þetta áttum við ekki möguleika því Raiola var búinn að koma sér vel fyrir hjá Pogba og fjölskyldu hans. Síðan samdi leikmaðurinn við Juventus,“ segir Ferguson. Raiola svarar ásökunum Ferguson í viðtali við Tuttosport og segir: „Orð hans lýsa vinnu minnu ekki á neikvæðan hátt heldur er þetta sönnun þess að ég er góður í því sem ég geri.“ „Ég verð að horfa til þess sem er best fyrir leikmennina mína. Ef ég hefði hugsað um sjálfan mig og hvað væri best fyrir mig til skemmri tíma var best að halda Pogba í Manchester.“ „En ég hugsaði fyrst og fremst um hagsmuni Pogba og fyrir hann var best að fara til Tórínó. Kannski líkar Ferguson bara vel við þá sem hlýða honum. Ég sé ekki betur en Ferguson hafi ekki hugmynd um hvernig maður Pogba er. Ferguson var frábær stjóri en bestu stjórarnir hafa stundum rangt fyrir sér,“ segir Mino Raiola.
Enski boltinn Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Fleiri fréttir Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Sjá meira