Enski boltinn

Markalaust í fyrsta leik Klopp

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Það fór vel á með stjórunum Jürgen Klopp og Mauricio Pochettino fyrir leik.
Það fór vel á með stjórunum Jürgen Klopp og Mauricio Pochettino fyrir leik. Vísir/afp
Liverpool gerði markalaust jafntefli við Tottenham Hotspur á útivelli í fyrsta leik liðsins undir stjórn Þjóðverjans Jürgens Klopp.

Þetta var þriðja jafntefli Liverpool í síðustu fjórum leikjum en liðið er í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 13 stig. Tottenham er með einu stigi meira í 7. sæti.

Liverpool byrjaði leikinn af miklum krafti en tókst ekki að skora. Divock Origi komst næst því þegar hann skallaði í slá eftir hornspyrnu á 10. mínútu.

Tottenham komst betur inn í leikinn eftir því sem leið á fyrri hálfleik og Simon Mignolet kom Liverpool tvívegis til bjargar með góðum markvörslum.

Staðan var markalaus í hálfleik en fátt markvert gerðist í seinni hálfleik. Harry Kane átti ágætis skot undir lok leiksins en Mignolet varði vel.

Hvorugu liðinu tókst að brjóta ísinn og því sættust þau á skiptan hlut. Lokatölur 0-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×