Innlent

Bátur sökk við Hellissand: Synti í sjónum án hlífðarfatnaðar í tíu mínútur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Myndirnar eru allar af vettvangi nema sú sem er að bátnum sem sökk.
Myndirnar eru allar af vettvangi nema sú sem er að bátnum sem sökk. Vísir
„Maðurinn var um tíu mínútur í sjónum,“ segir Arnar Laxdal, björgunarsveitarmaður, en bátur með einum innanborðs sökk rétt við Hellissand seinnipartinn í dag. Skipsverjinn komst ekki í galla, né björgunarvesti og björgunarbáturinn sprakk ekki út.

Hann var því í sjónum í um tíu mínútur eða þar til að Ólafur Bjarnason SH frá Ólafsvik kom honum til bjargar.

Rétt fyrir klukkan fimm í dag barst björgunarsveitinni Lífsbjörg tilkynning um vélarvana bát og að leki væri kominn í Herkúles SH NV af Rifi. Báturinn sökk rétt fyrir utan Hellissand eða um fjórum mílum norðaustur af Rifi.  

„Hann var ekki í galla eða neitt og var bara í sínum fötum. Hann komst ekki í neitt. Maðurinn hafði reynt að ná út björgunarbátnum og hafði togað í alla spotta, en báturinn virðist hafa verið gallaður. Fólki var mjög brugðið hér í bæjarfélaginu,“ segir Arnar sem var um borð í björgunarskipinu. Maðurinn komst um borð í Ólaf SH heill á húfi en mjög kaldur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×