Erlent

Metfjöldi hælisleitenda í ríkjum ESB

Atli Ísleifsson skrifar
Borgarastyrjöldin í Sýrlandi er talin meginorsök skýringarinnar.
Borgarastyrjöldin í Sýrlandi er talin meginorsök skýringarinnar. Vísir/AFP
Fjöldi hælisleitenda í aðildarríkjum Evrópusambandsins hafa aldrei verið fleiri en árið 2014.

Í nýjum gögnum Eurostat segir að 626 þúsund manns hafi sótt um hæli í aðildarríkjum ESB á síðasta ári. Borgarastyrjöldin í Sýrlandi er talin meginorsök skýringarinnar.

Fjöldi hælisleitenda jókst um 44 prósent milli ára.

123 þúsund Sýrlendinga sóttu um hæli árið 2014, borið saman við um 51 þúsund árið 2013.

Fimmtungur allra hælisleitenda í aðildarríkjum Evrópusambandsins er frá Sýrlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×