Ferguson: Rétt að ráða Moyes Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. október 2015 08:15 David Moyes og Alex Ferguson á hliðarlínunni árið 2013. Vísir/Getty
David Moyes entist í aðeins átta mánuði í starfi sem eftirmaður Alex Ferguson hjá Manchester Unted. Ferguson segir að það hafi verið engu að síður rétt ákvörðun að ráða Moyes. „Við gerðum það besta í þeim aðstæðum sem við vorum í,“ sagði Ferguson í nýrri heimildamynd sem verður frumsýnd í breska ríkissjónvarpinu, BBC, á sunnudagskvöld. Ferguson var við stjórnvölinn hjá United í 26 ár og hætti árið 2013. Undir stjórn hans átti United gríðarlegri velgengni að fagna en félagið hefur átt í vandræðum síðan. „Ég tel að við höfum ekki gert mistök. Við völdum góðan fótboltamann. Þetta gekk bara því miður ekki upp fyrir David,“ sagði Ferguson og bætti við að aðrir sem komu til greina voru ekki lausir. „Jose Mourinho var á leiðinni aftur til Chelsea, Carlo Ancelotti var að fara til Real Madrid, Jürgen Klopp hafði endurnýjað samning sinn við Dortmund og Louis van Gaal ákvað að fylga Hollandi á HM.“ Ferguson greindi enn fremur frá því að hann hafi fundað með Pep Guardiola yfir kvöldverði í september 2012, þegar hann hafði enn ekki tekið ákvörðun um að hætta hjá United. „Ég bað hann um að hringja í mig og láta mig vita hvað hann ætlaði að gera. Ég var þá að reyna að hugsa fram í tímann. En ég fékk ekkert svar og hann fór til Bayern München.“ Hann segir að hefði Ryan Giggs ekki enn verið að spila í kringum fertugt hefði Moyes líklega aldrei fengið tilboðið frá United. „Ef Ryan Giggs hefði hætt 35 ára gamall þá hefði ég líklega gert hann að aðstoðarmanni mínum. Þá hefði verið tilbúinn í starfið. En ég myndi aldrei biðja leikmann um að hætta.“ Giggs er í dag aðstoðarmaður Louis van Gaal knattspyrnustjóra og segir Ferguson að Giggs muni taka við starfinu af honum. Það hefur félagið þó ekki staðfest.
Enski boltinn Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Fleiri fréttir Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Sjá meira