Ólafur Páll: Mourinho er að missa tökin á starfinu Kristinn Páll Teitsson skrifar 6. október 2015 12:30 „
Þetta var hálf kjánalegt viðtal og mér finnst þetta eiginlega bara vera væll í honum. Hann er að reyna að koma athyglinni frá sér en hann ætti frekar að einbeita sér að því að komast að því hvað er að liðinu,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, aðspurður um viðtal sem Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, veitti eftir 1-3 tap gegn Southampton um helgina. Hjörvar Hafliðason, Arnar Gunnlaugsson og Ólafur Páll Snorrason gerðu upp 8. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í Messunni í gær og var úr nóg að taka. „Afhverju eru allir lykilleikmenn liðsins að spila illa í dag og hvar er liðsheildin? Afhverju lenti hann í þessu veseni með lækninn og afhverju er hann að gagnrýna leikmenn opinberlega. Hann hegðar sér allt öðruvísi heldur en undanfarin ár,“ sagði Arnar en Ólafur Páll sagði málið eiga sér eðlilega skýringu. „Ég held að hann sé búinn að átta sig á því að hann sé missa tökin á starfinu og hann þarf að takast á við vandann. Hann þarf að tala við leikmennina og viðurkenna mistökin og snúa við blaðinu upp á eigin spýtur,“ sagði Ólafur en þegar Arnar spurði Ólaf hvort hann héldi að Mourinho væri búinn að missa traust leikmannana svaraði Ólafur játandi. „Ég held að það sé einmitt málið. Hann bendir mjög mikið á aðra og reynir í þessu viðtali að höfða til samvisku eigandans og stuðningsmannana. Fá þá til að vorkenna sér en úr verður eitthvað algjört væl. Hann er hræddur við að missa titilinn The Special One og hann missir það ef hann verður rekinn.“ Arnar segir að það sé ekki hægt að vorkenna þjálfara í slíkri stöðu, ábyrgðin sé hjá knattspyrnustjóranum. „Þessi skilaboð um að þetta sé ekki stjóranum að kenna? Auðvitað er það honum að kenna. Ef þú ert á skipstjóri og ert ekkert að veiða rekuru ekki hásetana. Skipstjórinn er látinn fara.“
Enski boltinn Mest lesið Dæmdur ofbeldismaður keppir á Opna breska í ár Golf Endurnýja kynnin: „Stórar skoðanir en ekki endilega góðar skoðanir“ Golf Gæti fengið átta milljarða króna Formúla 1 Caitlin Clark aftur meidd og vandaði dómaranum ekki kveðjurnar Körfubolti Yamal tekur óhræddur við tíunni Fótbolti Stærsta stjarna Sviss fær lítið að spila á EM en allir vilja hitta hana Fótbolti Biðin eftir Meistaravöllum styttist um einn dag Fótbolti Dagskráin í dag: Golf og snóker og snóker og golf Sport Erlangen staðfestir komu Andra Handbolti Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Sport Fleiri fréttir Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona Liverpool reynir líka við Ekitike Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Sjá meira