Í meistaradeildarhópi PSV en kemst ekki í 21 árs landslið Íslands Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. september 2015 08:30 Albert þegar hann gekk í raðir PSV á dögunum.
Albert Guðmundsson, hinn átján ára gamli leikmaður PSV Eindhoven, verður í 25 manna leikmannahópi hollenska liðsins í Meistaradeild Evrópu í vetur. PSV leikur í riðli með Manchester United, CSKA Moskvu og Wolfsburg. Athyglisvert er að Philip Cocu velji Albert í hópinn en sýnir mögulega það traust og þá trú sem hollenski miðjumaðurinn fyrrverandi ber til Alberts. PSV keypti Albert frá Heerenveen fyrr í sumar. Vesturbæingurinn Albert er hins vegar ekki í tuttugu manna leikmannahópi 21 árs landsliðsins sem mætir Frökkum og Norður-Írum í undankeppni EM 5. og 8. september. Albert var heldur ekki í hópnum þegar Ísland lagði Makedóníu í fyrsta leik liðsins í riðlinum, 3-0 á Vodafone-vellinum í júní. Albert á einn leik að baki með 21 árs landsliðinu. Hann kom síðastur varamanna inn á 81. mínútu í 3-0 tapi í vináttulandsleik gegn Rúmeníu í mars.Samkeppni um framherjastöðuna Albert er framherji en meðal framherja í landsliðshópi Íslands eru Viktor Jónsson í Þrótti, Kristján Flóki Finnbogason hjá FH, Aron Elís Þrándarson hjá Álasundi og Árni Vilhjálmsson hjá Lilleström. Albert er tveimur til þremur árum yngri en ofantaldir leikmenn og fastamaður í 19 ára landsliði Íslands sem hefur ekki náð að landa sigri í síðustu átta leikjum sínum undir stjórn Kristins Rúnars Jónssonar. Þorvaldur Örlygsson tók við þjálfun liðsins í desember síðastliðnum en næsti leikur liðsins er gegn Norður-Írum í október. Óhætt er að fullyrða að aldrei hafi það gerst áður að íslenskur leikmaður í leikmannahóoi liðs í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu komist ekki í 21 árs landslið þrátt fyrir að vera gjaldgengur í það.
Fótbolti Tengdar fréttir Albert til PSV: „Stór klúbbur og gott skref fyrir minn feril“ Fyrsta máltíð Alberts Guðmundssonar, sem atvinnumanns hjá PSV Eindhoven, var spaghettí bolognese. 18. júlí 2015 14:27 Albert og félagar rúlluðu yfir Barcelona í úrslitaleik Otten Cup Albert Guðmundsson og félagar hans í undir nítján ára liði PSV unnu Otten Cup í dag eftir 4-0 sigur á Barcelona í úrslitaleiknum, en Otten Cup er sterkt æfingarmót í Hollandi. 16. ágúst 2015 19:00 Eyjólfur: Við höfum sýnt það áður að við getum gert allt Eyjólfur Sverrisson, þjálfari íslenska U21 árs landsliðsins, á von á misjöfnum en erfiðum leikjum gegn Frakklandi og Norður-Írlandi. Hann segir að leikmenn þekki betur Frakkana enda leikmenn í heimsklassa. 27. ágúst 2015 06:30 Albert Guðmundsson í leikmannahópi PSV í Meistaradeildinni Ungstirnið gæti mætt á Old Trafford í vetur eða farið til Rússlands eða Þýskalands. 2. september 2015 16:30 Mest lesið Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Enski boltinn Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Fram - KA | Vinnur Fram þriðja leikinn í röð? Íslenski boltinn Chelsea - Brighton 4-3 | Dramatískur markaleikur á brúnni Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn FH - Keflavík | FH getur bætt stöðu sína í deildinni Íslenski boltinn Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Enski boltinn Fleiri fréttir Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Stjörnur Real Madrid léku sér í stórsigri á Malaga Fram - KA | Vinnur Fram þriðja leikinn í röð? FH - Keflavík | FH getur bætt stöðu sína í deildinni Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Ísak Snær skoraði í svekkjandi jafntefli Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Chelsea - Brighton 4-3 | Dramatískur markaleikur á brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Messi skoraði fjögur í stórsigri Inter Miami Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Orri hetjan í fyrsta sigrinum Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Martröð Alberts og félaga í upphafi leiktíðar Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Sjá meira
Albert til PSV: „Stór klúbbur og gott skref fyrir minn feril“ Fyrsta máltíð Alberts Guðmundssonar, sem atvinnumanns hjá PSV Eindhoven, var spaghettí bolognese. 18. júlí 2015 14:27
Albert og félagar rúlluðu yfir Barcelona í úrslitaleik Otten Cup Albert Guðmundsson og félagar hans í undir nítján ára liði PSV unnu Otten Cup í dag eftir 4-0 sigur á Barcelona í úrslitaleiknum, en Otten Cup er sterkt æfingarmót í Hollandi. 16. ágúst 2015 19:00
Eyjólfur: Við höfum sýnt það áður að við getum gert allt Eyjólfur Sverrisson, þjálfari íslenska U21 árs landsliðsins, á von á misjöfnum en erfiðum leikjum gegn Frakklandi og Norður-Írlandi. Hann segir að leikmenn þekki betur Frakkana enda leikmenn í heimsklassa. 27. ágúst 2015 06:30
Albert Guðmundsson í leikmannahópi PSV í Meistaradeildinni Ungstirnið gæti mætt á Old Trafford í vetur eða farið til Rússlands eða Þýskalands. 2. september 2015 16:30