Þúsundir fylgdu Dan Uzan til grafar Atli Ísleifsson skrifar 18. febrúar 2015 16:15 Rabbíninn Bent Lexner segir að Uzan hafi að öllum líkindum komið í veg fyrir enn stærri harmleik. Vísir/Hørsholm 79:ers/AFP
Þúsundir manna fylgdu hinum 37 ára Dan Uzan til grafar í Kaupmannahöfn fyrr í dag. Uzan var öryggisvörður í bænahúsi gyðinga og annað fórnarlamb árásarmannsins Omar El-Hussein í dönsku höfuðborginni um síðustu helgi. Uzan var í athöfninni hylltur sem hetja. Hann spilaði körfubolta, var fótboltamarkmaður og var lýst sem manni sem bauð sig alltaf fram fyrir liðið. Það hafi því ekki þótt undarlegt að hann hafi varið laugardagskvöldi sínu sem öryggisvörður þegar fram fór fermingarveisla í bænahúsi gyðinga við Kristalsgötu í Kaupmannahöfn. Rabbíninn Bent Lexner segir að Uzan hafi að öllum líkindum komið í veg fyrir enn stærri harmleik. Helle Thorning-Schmidt forsætisráðherra var ein þeirra sem sótti athöfnina fyrr í dag. Uzan ólst upp í Hvidovre, norður af Kaupmannahöfn, átti danska móður og ísraelskan föður. Í frétt Dagens Nyheter segir að fjölskyldan hafi verið virk innan samfélags gyðinga og sótti Uzan meðal annars skóla gyðinga, Carolinerskólann, í Kaupmannahöfn. Uzan var stór og mikill vexti, tveir metrar á hæð og herðabreiður. Hann spilaði körfubolta með Hørsholm 79:ers og var markmaður liðsins Hakoah um margra ára skeið. Hitt fórnarlamb árásarmannsins var hinn 53 ára leikstjóri Finn Nørgaard. Þeir fimm lögreglumenn sem særðust í árásum helgarinnar hafa allir verið úrskrifaðir frá sjúkrahúsi.Helle Thorning-Schmidt forsætisráðherra var ein þeirra sem sótti athöfnina fyrr í dag.Vísir/AFP
Tengdar fréttir Íslendingur í Kaupmannahöfn: „Maður er pínu skelkaður“ Ljósmyndarinn Helgi Ómarsson hætti við að fara í bæinn vegna skotárása. 15. febrúar 2015 10:55 Tveir ákærðir fyrir að hafa aðstoðað árásarmanninn Mennirnir eru grunaðir um að hafa aðstoðað hinn 22 ára Omar Abdel Hamid El-Hussein sem grunaður er um árásirnar í Kaupmannahöfn. 16. febrúar 2015 09:20 Danska leyniþjónustan vöruð við El-Hussein Fengu ábendingu frá fangelsisyfirvöldum um árásarmanninn á meðan hann sat inni. 17. febrúar 2015 23:43 Árásirnar verði ekki til þess að „reka fleyg á milli fólks“ Gunnar Bragi Sveinsson tók þátt í minningarathöfn um fórnarlömb skotárásanna í Kaupmannahöfn. 16. febrúar 2015 20:55 Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Strandveiðisjómaður lést Innlent Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Snurða hljóp á þráðinn í nótt Innlent Unglingsstúlka lést þegar hestur dró hana eftir jörðinni Erlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Fleiri fréttir Unglingsstúlka lést þegar hestur dró hana eftir jörðinni „Stóra og fallega“ frumvarp repúblikana á tæpasta vaði Skæð hitabylgja velgir Evrópubúum undir uggum Aftur kjörin formaður þrátt fyrir fjárdráttinn sem felldi hana Skaut á slökkviliðsmenn úr launsátri Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Krefjast svara um mögulegar frekari árásir Þúsundir Norðmanna fengu fyrir mistök tilkynningu um að hafa unnið milljónir Hitamet slegið á Spáni um helgina Sæta lögreglurannsókn vegna níðsöngva um ísraelska herinn Hættu leit eftir þrjá tíma að þeim sem féll útbyrðis úr Norrænu Íranir geti aftur byrjað að auðga úran eftir nokkra mánuði Metþátttaka í ólöglegri göngu: „Það er mikill hugur í fólki“ Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Hæstaréttardómarar fjarlægðu flein úr holdi Bandaríkjaforseta Lífstíðarfangelsi fyrir að myrða 14 ára dreng með samúræjasverði Finna fyrir fjarveru Bandaríkjanna á loftslagsfundi en sakna þeirra ekki Ungar konur særðust í skotárás í Nuuk Sá sem samdi Mission: Impossible lagið er látinn Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Dönsk stjórnvöld vilja tryggja fólki höfundarrétt að eigin persónu Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Twitter-morðinginn tekinn af lífi Stígur fram og segir Írani hafa löðrungað Bandaríkin „Áreiðanleg gögn“ sanni verulegt tjón á kjarnorkumannvirkjum Hvar er Khamenei? Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Sjá meira
Íslendingur í Kaupmannahöfn: „Maður er pínu skelkaður“ Ljósmyndarinn Helgi Ómarsson hætti við að fara í bæinn vegna skotárása. 15. febrúar 2015 10:55
Tveir ákærðir fyrir að hafa aðstoðað árásarmanninn Mennirnir eru grunaðir um að hafa aðstoðað hinn 22 ára Omar Abdel Hamid El-Hussein sem grunaður er um árásirnar í Kaupmannahöfn. 16. febrúar 2015 09:20
Danska leyniþjónustan vöruð við El-Hussein Fengu ábendingu frá fangelsisyfirvöldum um árásarmanninn á meðan hann sat inni. 17. febrúar 2015 23:43
Árásirnar verði ekki til þess að „reka fleyg á milli fólks“ Gunnar Bragi Sveinsson tók þátt í minningarathöfn um fórnarlömb skotárásanna í Kaupmannahöfn. 16. febrúar 2015 20:55