Mourinho: Stjórar þurfa ekkert að takast í hendur vilji þeir það ekki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. ágúst 2015 10:00 Jose Mourinho og Arsene Wenger. Vísir/EPA
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var auðvitað spurður út í samskipti sín og Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal í kringum leikinn um Samfélagsskjöldinn um síðustu helgi. Jose Mourinho og Arsene Wenger eru ekki miklir vinir og það fer ekkert framhjá neinum. Mourinho óskaði meðal annars öllum leikmönnum Arsenal til hamingju með sigurinn en strunsaði síðan framhjá Wenger þegar hann kom síðastur niður tröppurnar. „Ég vil ekki gera mál úr þessu en ef þú ert að ganga eftir götu þá ertu ekkert skuldbundinn því að segja halló eða taka í höndina á öllum sem þú mætir," sagði Jose Mourinho. „Ég veit samt að þegar þú kemur fram fyrir hönd félags eða fótboltastofnunnar þá er þetta aðeins öðruvísi," sagði Mourinho. „Í leiknum um Samfélagsskjöldinn þá hugsaði ég um mitt félag, leikstaðinn, Wembley og alla söguna sem honum fylgir. Wembley er síðasti staðurinn í sögu fótboltans sem þú vilt haga þér illa. Það er samt mín skoðun að knattspyrnustjórar þurfa ekkert að takast í hendur vilji þeir það ekki," sagði Mourinho. Arsene Wenger fagnaði sigri í fyrsta sinn á móti Jose Mourinho í umræddum leik en það eru margir á því að Arsenal verði höfuðandstæðingur Chelsea í vetur í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn.
Enski boltinn Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Fleiri fréttir Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Sjá meira