Dramatískur sigur Cardiff | Jóhann Berg og félagar fóru illa að ráði sínu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. desember 2015 21:49 Aron fagnar Kenwyne Jones eftir að hann skoraði sigurmark Cardiff. vísir/getty
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn fyrir Cardiff City sem vann 3-2 sigur á Brentford í ensku B-deildinni í fótbolta í kvöld. Eftir að hafa verið úti í kuldanum í byrjun tímabils hefur landsliðsfyrirliðinn unnið sér sæti í byrjunarliði Cardiff og hann hefur átt sinn þátt í fínu gengi liðsins upp á síðkastið. Cardiff hefur fengið átta stig úr síðustu fjórum leikjum sínum og situr í 7. sæti með 33 stig, einu stigi frá Ipswich Town sem er í því sjötta. Cardiff var 2-0 yfir í hálfleik en Brentford-menn sóttu í sig veðrið í seinni hálfleik og náðu að jafna metin fjórum mínútum fyrir leikslok. En það var svo Kenwyne Jones sem tryggði Cardiff stigin þrjú þegar hann skoraði annað mark sitt og þriðja mark liðsins í uppbótartíma. Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Charlton sem missti niður tveggja marka forystu gegn botnliði Bolton Wanderers á heimavelli. Jóhann og félagar byrjuðu leikinn frábærlega og Ademola Lookman kom Charlton yfir strax á upphafsmínútu leiksins. Lookmann var svo aftur á ferðinni á 26. mínútu og útlitið orðið gott fyrir heimamenn. En Bolton-menn voru ekki af baki dottnir og gamla brýnið Emile Heskey minnkaði á 32. mínútu. Tíu mínútum síðar jafnaði Josh Vela metin og þar við sat. Lokatölur 2-2. Jóhann Berg fór af velli á 70. mínútu. Charlton er enn í fallsæti en liðið er einu stigi frá öruggu sæti.
Enski boltinn Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira