David Beckham spilar aftur undir stjórn Sir Alex Ferguson Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. október 2015 09:00 David Beckham og Sir Alex Ferguson. Vísir/Getty
Sir Alex Ferguson er ekki alveg hættur því hann mun stýra úrvalsliði Englands og Írlands í góðgerðaleik í næsta mánuði. Það sem er ekki síður merkilegt er að fyrirliði liðsins er David Beckham sem mun því aftur spila undir stjórn Sir Alex. Úrvalslið þeirra Sir Alex og Beckham mun mæta heimsliði frönsku goðsagnarinnar Zinedine Zidane en leikurinn fer fram á Old Trafford 14. nóvember næstkomandi. Carlo Ancelotti, fyrrum þjálfari Chelsea, Real Madrid og AC Milan, mun stýra heimsliðinu og dómarinn verður enginn annar er Pierluigi Collina. Allur ágóðinn af leiknum mun síðan renna til Unicef en það hafa örugglega margir áhuga á því að sjá þessa gömlu goðsagnir fótboltans eigast við í Leikhúsi draumanna. Sir Alex Ferguson er orðinn 73 ára gamall en hann hætti sem knattspyrnustjóri Manchester United vorið 2013 eftir að liðið hafði unnið 38 titla á 26 árum hans í stjórastólnum. David Beckham kom upp í aðallið Manchester United í tíð Sir Alex Ferguson og lék alls 394 leiki fyrir hann áður en Sir Alex Ferguson seldi hann til Real Madrid sumarið 2003. Það var Beckham sjálfur sem hringdi í Sir Alex og bað hann um að stýra liðinu í þessum leik. David Beckham og Sir Alex Ferguson unnu tólf titla saman hjá Manchester United þar á meðal enska meistaratitilinn sex sinnum, enska bikarinn tvisvar og Meistaradeildina einu sinni.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Sjá meira