Fullkomin fimma hjá Agüero á aðeins 20 mínútum | Sjáðu mörkin Kristinn Páll Teitsson skrifar 3. október 2015 15:38
Sergio Agüero, argentínski framherji Manchester City, gekk einfaldlega frá Newcastle í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni sem stendur yfir þessa stundina. Eftir að Newcastle komst óvænt yfir hlóð Agüero einfaldlega í fimm mörk. Agüero hafði aðeins skorað eitt mark í ensku úrvalsdeildinni í vetur fram að leik dagsins en hann skoraði sigurmark Manchester City gegn Borussia Mönchengladbach á miðvikudaginn. Agüero jafnaði metin skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks með skalla af stuttu færi en hann kom Manchester City yfir í byrjun seinni hálfleiks með skoti sem fór af varnarmanni og í netið. Aðeins einni mínútu síðar tókst honum að fullkomna þrennuna eftir stungusendingu inn fyrir vörn gestanna en hann lyfti boltanum yfir Tim Krul í marki Newcastle. Fjórða mark Aguero var einkar glæsilegt en hann kom inn á hægri fótinn og skrúfaði boltann í fjærhornið. Bætti hann við sjötta marki Manchester City og fimmta marki sínu í leiknum af stuttu færi eftir góða sendingu inn á vítateiginn. Náði hann fullkominni þrennu, þ.e. einu marki með skalla, einu með vinstri fæti og einu með hægri en stuttu síðar skipti Manuel Pellegrini honum af velli og risu áhorfendur á vellinum á fætur honum til heiðurs er hann gekk af velli.
Enski boltinn Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Sjá meira