Enski boltinn

Móðir Diouf lést í Mekka

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Stoke City gaf út tilkynningu þess efnis að móðir sóknarmannins Mame Biram Diouf er meðal þeirra sem létust í troðningnum í Mekka í Sádí-Arabíu.

„Stoke City samhryggist Mame Diouf eftir sorglegt fráfall móður hans,“ sagði í yfirlýsingunni og var því bætt við að félagið muni veita honum og fjölskyldu hans allan þann stuðning sem hann þarf.

Talið er að meira en þúsund hafi látist þegar þeir tróðust undir í Mina, rétt utan Mekka, þann 24. september síðastliðinn.

Diouf, sem er frá Senegal, kom frá Hannover í fyrra. Hann var á mála hjá Molde og Manchester United og lék þar að auki sem lánsmaður hjá Blackburn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×