Enski boltinn

Cleverley og fjölskyldu ógnað af innbrotsþjófum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Þjófar brutust inn á heimili Tom Cleverley, leikmanns Everton, og ógnuðu honum og fjölskyldu hans auk þess sem þeir létu greipar sópa.

Cleverley var heima við ásamt eiginkonu sinni, Georgina Dorsett, og tveggja ára dóttur þeirra þegar þjófarnir brutust inn í hús þeirra. Öll sluppu þó ósködduð.

Samkvæmt enskum fjölmiðlum munu þjófarnir hafa meðal annars stolið tveimur bílum, skartgripum og handtöskum. Ónefndur heimildamaður sagði við The Sun í morgun að atvikið hafi tekið mjög á Cleverley og eiginkonu hans.

Atvikið átti sér stað á föstudaginn og sagði í yfirlýsingu frá lögreglu að rannsókn væri enn í fullum gangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×