Enski boltinn

Coutinho er ánægður hjá Liverpool

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Brasilíumaðurinn Coutinho hefur verið orðaður við nokkur lið undanfarna daga. En umboðsmaður hans segir það rangt að hann sé á förum og að miðjumaðurinn öflugi sé ánægður hjá Liverpool.

Spænskir fjölmiðlar slógu því upp fyrr í vikunni að Coutinho væri á óskalista Barcelona auk þess sem að Real Madrid hefði áhuga á kappanum.

Þá hafa enskir fjölmiðlar fullyrt að Manchester City sé með augastað á Coutinho og líti á hann sem mögulegan arftaka David Silva.

„Philippe er afar ánægður hjá Liverpool. Hann skrifaði undir nýjan langtímasamning undir lok síðasta tímabils og það sýnir að hann hefur metnað til að standa sig vel hjá Liverpool,“ sagði umboðsmaðurinn Kia Joorabchian.

„Sögusagnir þess efnis að ég hafi átt í viðræðum við Real Madrid eru ekki réttar.“


Tengdar fréttir

Neymar: Coutinho myndi henta Barcelona vel

Brasilíski framherjinn Neymar vonast til þess að landi sinn, Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool leiki með Barcelona einn daginn því hann henti liðinu vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×