Eltir John Terry Eið Smára til Kína? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. september 2015 07:30 John Terry með þeim Didier Drogba og Eiði Smára Guðjohnsen. Vísir/Getty
John Terry og Eiður Smári Guðjohnsen spiluðu saman í mörg ár hjá Chelsea og nú gæti fyrirliði Chelsea mögulega verið að elta íslenska landsliðsmanninn til Kína ef marka má frétt hjá Daily Mirror. Terry er búinn að missa sæti sitt í byrjunarliði Chelsea en hann er orðinn 34 ára gamall og hefur verið fyrirliði Chelsea frá 2004 eða í meira en áratug. Framtíð Terry á Stamford Bridge er því í uppnámi, að minnsta kosti í ensku blöðunum, þótt að forráðamenn Chelsea gefi ekki neitt upp. Eiður Smári Guðjohnsen er einn af frægum leikmönnum úr ensku úrvalsdeildinni sem hafa skellt sér í kínverska boltann og nú getur Terry valið úr tilboðum frá kínverskum liðum samkvæmt umræddri frétt Daily Mirror. Samningur John Terry og Chelsea rennur út í sumar en miðvörðurinn hefur verið ónotaður varamaður í síðustu fjórum leikjum Chelsea í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni. Terry byrjaði inná í fyrstu þremur leikjum Chelsea í ensku úrvalsdeildinni en fékk rautt spjald í þriðja leiknum sem var á móti West Brom. Chelsea tapaði síðan 3-1 á móti Everton í fyrsta leik hans eftir leikbannið og Jose Mourinho hefur siðan ekki gefið fyrirliða sínum eina mínútu í aðalkeppnunum tveimur þótt að Terry hafi spilað á móti Walsall í enska deildabikarnum. Everton-leikurinn fór fram 12. september síðastliðinn. Eiður Smári Guðjohnsen spilar með Shijiazhuang Ever Bright en ekki kemur fram í frétt Mirror hvort að það lið sé eitt af þeim sem hefur borið víurnar í Terry. Svíinn Sven-Göran Eriksson þjálfar lið Shanghai SIPG en það var einmitt hann sem tók Terry fyrst inn í enska landsliðið árið 2003. Eina evrópska liðið sem er nefnt á nafn er tyrkneska félagið Fenerbahce en með því spila einmitt Robin van Persie og Nani, báðir fyrrum leikmenn Manchester United.
Enski boltinn Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Sjá meira