Fótbolti

Kostaríka jafnaði í blálokinn

Karla Villalobos er hér að tryggja Kosta Ríka jafntefli gegn Suður Kóreu.
Karla Villalobos er hér að tryggja Kosta Ríka jafntefli gegn Suður Kóreu. vísir/afp
Suður Kórea og Kostaríka skildu jöfn, 2-2, í viðureign sinni á HM kvenna sem fram fer í Kanada. Jöfnunarmark Kostaríka kom undir blálokinn.

Kostaríka náði forystunni þegar Melissa Herrera skoraði á 17. mínútu. Fjórum mínútum síðar jafnaði Ji Soyun metin með marki úr vítaspyrnu og fjórum mínútum eftir það kom Jeon Gaeul Suður Kóreu yfir með laglegu skallamarki.

Þegar svo ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma fékk Karla Villalobos sendingu inn fyrir vörn Suður Kóreu og lagði boltann laglega framhjá markverðinum og í markið. 2-2 var því niðurstaðan.

Kostaríka er í 2. sæti E-riðils með 2 stig eftir þennan leik en Suður Kórea er í neðsta sæti riðilsins með eitt stig. Í síðustu umferðinni mætir Kostaríka liði Brasilíu sem þegar hefur tryggt sér sæti í 16 liða úrslitum. Suður Kórea mætir hins vegar Spáni sem einnig er aðeins með eitt stig eftir tvo fyrstu leikina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×