Van Basten: Depay hefur sérstaka hæfileika Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. maí 2015 20:30 Memphis Depay. Vísir/Getty
Hollenska knattspyrnugoðsögnin Marco van Basten hefur miklar mætur á landa sínum Memphis Depay en hollenski landsliðsmaðurinn mun spila með Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Memphis Depay átti mikinn þátt í því að PSV Eindhoven varð hollenskur meistari á nýloknu keppnistímabili og hann fer nú til Louis van Gaal sem gaf honum tækifærið með hollenska landsliðinu. Marco van Basten hefur séð mikið til stráksins en Memphis Depay hefur verið lengi í stóru hlutverki í hollensku deildinni þrátt fyrir að vera bara 21 árs gamall. „Depay hefur sérstaka hæfileika og hann er betri en aðrir leikmenn í hollensku deildinni," sagði Marco van Basten í viðtali við Sky Sports. „Hann er mjög góður leikmaður. Þetta er ungur stjörnuleikmaður sem hefur andlegan styrk og eigin hugmyndir sem eru kostir fyrir leikmann að mínu mati," sagði Van Bater í viðtalinu. „Hann er líka strákur sem vill læra meira og ég tel að hann sé í góðum höndum hjá Louis van Gaal sem vann með honum í kringum HM í Brasilíu í fyrra," sagði Van Basten. „Núna þarf hann að sanna það að hann geti líka spilað vel á Englandi. Hann mun sýna það og sanna. Ég veit ekki hvort það kemur allt strax í ljós á fyrsta tímabilinu en hann hefur hæfileika til að standa sig vel í Englandi," sagði Van Basten. Memphis Depay skoraði 22 mörk í 30 leikjum með PSV Eindhoven í hollensku deildinni en liðið vann þá sinn fyrsta meistaratitil síðan 2008. Depay var með tíu mörkum meira en í fyrra.
Enski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Man. United - Newcastle | Án Bruno en geta komist upp fyrir Liverpool Enski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Fótbolti Fleiri fréttir Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Man. United - Newcastle | Án Bruno en geta komist upp fyrir Liverpool Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Sjá meira