Erlent

Hjónabönd samkynhneigðra leyfð í Alabama

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá Birmingham Alabama.
Frá Birmingham Alabama. Vísir/AP
Embættismenn í Alabama í Bandaríkjunum byrjuðu í dag að gefa út hjúskaparleyfi til samkynhneigðra para. Hæstiréttur Bandaríkjanna tilkynnti í dag að hann myndi ekki setja sig upp á móti því. Þrátt fyrir að hæst setti dómari ríkisins hafi reynt að koma í veg fyrir það.

Um leið og Hæstiréttur tilkynnti ákvörðun sína var byrjað að veita pörum, sem sum höfðu beðið við dómshús tímunum saman, leyfi.

„Kominn tími til,“ hefur AP fréttaveitan eftir Shante Wolfe en hún og unnusta hennar höfðu tjaldað fyrir utan dómshús til að vera með þeim fyrstu til að fá leyfi í Alabama.

Roy Moore, æðsti dómari Alabama, skipaði í gær öðrum dómurum að veita samkynhneigðum ekki hjúskaparleyfi. Þeirri skipun hlýddu þó langflestir dómarar ekki. AP hefur fregnir af því að fjórir dómarar hafi neitað að veita samkynhneigðum leyfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×