Sturridge: Get ekki beðið eftir því að spila á ný Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2015 08:35 Daniel Sturridge, framherji Liverpool. Vísir/AFP
Daniel Sturridge, framherji Liverpool, gæti spilað langþráðan leik um helgina þegar Liverpool-liðið mætir West Ham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, mun ákveða það í dag hvort að Sturridge spili á morgun. „Ég er bara að einbeita mér að því að æfa vel og sætti mig bara við það að leyfa starfsliðinu að ákveða það hvenær ég fæ aftur að vera með," sagði Daniel Sturridge við BBC. Daniel Sturridge hefur ekki spilað með Liverpool síðan að hann meiddist á landsliðsæfingu í september. Síðan hefur hann meiðst bæði á kálfa sem og aftan í lærinu. Daniel Sturridge átti að leiða Liverpool-sóknina á leiktíðinni eftir að Luis Suarez var seldur til Barcelona og það hefur því munað mikið um fjarveru hans. Rickie Lambert er markahæsti framherji félagsins með þrjú mörk, sex mörkum færra en fyrirliðinn Steven Gerrard. „Ég hlakka til að fá aftur að vera með. Mér líður vel og get ekki beðið eftir því að spila á ný," sagði Daniel Sturridge sem hefur skorað 32 mörk í 56 leikjum í ensku úrvalsdeildinni síðan að hann kom til Liverpool. „Þetta hefur verið mjög pirrandi en lærdómsríkur tími. Þessi reynsla hefur hjálpað mér að læra nýja hluti. Þetta hefur verið gott fyrir andlega hluta leiks míns því ég hef náð að bæta hann," sagði Daniel Sturridge.
Enski boltinn Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Með Haaland á toppi vinsældalistans Fótbolti Ken Bates látinn Enski boltinn Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira