Lampard: Skrítið að spila hérna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. janúar 2015 20:24 Lampard er goðsögn á Stamford Bridge. vísir/getty
Frank Lampard fékk góðar viðtökur á Stamford Bridge þegar hann kom inn á sem varamaður 13 mínútum fyrir leikslok þegar Chelsea og Manchester City skildu jöfn, 1-1, í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lampard þekkir hverja þúfu á Stamford Bridge en hann lék með Chelsea um 13 ára skeið, frá 2001 til 2014. Hann leikur nú með Manchester City og skoraði m.a. í fyrri leik liðanna á Etihad vellinum 21. september. Hann var mátulega sáttur með stigið sem City fékk úr leik dagsins. „Við höfum gefið eftir í síðustu leikjum en þetta var betra. Við erum ennþá í baráttunni um titilinn. Hvorugt liðið getur verið ósátt með úrslitin,“ sagði Lampard sem var ánægður með móttökurnar sem hann fékk á Brúnni í dag. „Það var skrítið að spila hérna á Stamford Bridge. Ég var svolítið stressaður en ég er ánægður með viðtökurnar sem ég fékk frá stuðningsmönnum beggja liða. „Þú veist aldrei hvernig viðtökur þú færð en stuðningsmenn Chelsea voru frábærir. Það var gaman að koma aftur og hitta fólkið sem vinnur þarna og leikmennina,“ sagði Lampard sem skoraði 211 mörk í 648 leikjum fyrir Chelsea. Chelsea hefur fimm stiga forskot á Manchester City á toppi úrvalsdeildarinnar þegar bæði lið eiga eftir að spila 15 leiki.
Enski boltinn Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Fleiri fréttir Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ Sjá meira