Öruggt hjá West Ham gegn Hull | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. janúar 2015 00:01 Sune Aluko og James Tomkins eigast við. vísir/getty
West Ham vann öruggan sigur á Hull City á Upton Park í dag með þremur mörkum gegn engu. Með sigrinum komust Hamrarnir upp fyrir Liverpool í 7. sæti deildarinnar. West Ham er nú með 36 stig, fjórum stigum frá Meistaradeildarsæti. Hull er hins vegar í fallsæti með 19 stig en liðið hefur aðeins unnið fjóra leiki í vetur. Staðan var markalaus í hálfleik, en James Tomkins og Enner Valencia komust næst því að skora fyrir West Ham. Sune Aluko fékk besta færi Hull þegar hann slapp inn fyrir vörn West Ham en James Collins bjargaði á síðustu stundu. Eftir fjögurra mínútna leik í seinni hálfleik kom Andy Carroll West Ham yfir þegar hann ýtti boltanum yfir línuna eftir að MCGregor varði skot Valencia út í teiginn. Þetta var fimmta deildarmark Carrolls í vetur en hann hefur spilað vel í undanförnum leikjum. Varamaðurinn Morgan Amalfitano tvöfaldaði forystu West Ham á 69. mínútu þegar hann lyfti boltanum yfir McGregor af stuttu færi eftir sendingu frá Valencia. Þremur mínútum síðar bætti Stewart Downing þriðja markinu við eftir að hafa fengið stungusendingu inn fyrir vörn Hull frá Alex Song. Kevin Nolan var svo nálægt því að skora fjórða markið um fimm mínútum fyrir leikslok, en skot fyrirliðans fór í slána. Fleiri urðu mörkin ekki og West Ham fagnaði öruggum sigri sem er mikilvægur í baráttunni um Evrópusæti.West Ham 1-0 Hull West Ham 2-0 Hull West Ham 3-0 Hull
Enski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Fleiri fréttir Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Sjá meira