Handrukkun í Fellunum: „Lá á gangstéttinni alblóðugur í framan“ Stefán Árni Pálsson skrifar 18. maí 2015 20:35 Árásin átti sér stað við rauða hringinn. vísir/aðsend „
Þarna voru tveir menn að sparka og slá mann sem lá á gangstéttinni alblóðugur í framan og einn sló hann með járnröri í fótinn,“ segir kona sem varð vitni að alvarlegri líkamsárás sem átti sér stað í Iðufelli í Breiðholti í dag en líklega var um svokallaða handrukkun að ræða. Konan sá atvikið af svölunum í íbúð sinni um klukkan fimm í dag.Lögreglan staðfestir þetta í samtali við DV en þar segir að um sé að ræða uppgjör vegna skuldar. Árásin átti sér stað bak við Iðufell 12, rétt við Leifasjoppu. Konan segir að eldri maður hafi staðið rétt hjá og fórnarlambið beðið hann um að hringja á lögregluna. „Maðurinn sem var laminn snéri sér við á gangstéttinni og reyndi að standa upp á meðan hann bað gamla manninn um að hringja í lögregluna, ég var þá búin að hringja sjálf og lögreglan sagðist vera á leiðinni.“ Konan segir að lögreglan hafi komið á vettvang um einni mínútu eftir að mennirnir hlupu á brott. „Það kallaði einhver frá blokkinni að þeir hefðu verið á hvítri Toyotu. Lögreglumennirnir töluðu við fórnarlambið og eldri manninn þangað til að sjúkrabíll kom. Þá var fórnarlambið aðstoðað á börur, inn í sjúkrabíl og honum ekið í burt. Lögreglan tók síðan skýrslur af þó nokkrum nágrönnum sem gáfu sig fram og mikið af krökkum söfnuðust saman á svæðinu.“ Henni finnst hræðilegt að svona gerist um hábjartan dag. „Þarna labbar fólk daglega með börnin sín og gæludýr.“
Mest lesið Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Erlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Innlent Fleiri fréttir „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Sjá meira