Innlent

Handrukkun í Fellunum: „Lá á gangstéttinni alblóðugur í framan“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Árásin átti sér stað við rauða hringinn.
Árásin átti sér stað við rauða hringinn. vísir/aðsend
„Þarna voru tveir menn að sparka og slá mann sem lá á gangstéttinni alblóðugur í framan og einn sló hann með járnröri í fótinn,“ segir kona sem varð vitni að alvarlegri líkamsárás sem átti sér stað í Iðufelli í Breiðholti í dag en líklega var um svokallaða handrukkun að ræða. Konan sá atvikið af svölunum í íbúð sinni um klukkan fimm í dag.

Lögreglan staðfestir þetta í samtali við DV en þar segir að um sé að ræða uppgjör vegna skuldar. Árásin átti sér stað bak við Iðufell 12, rétt við Leifasjoppu. Konan segir að eldri maður hafi staðið rétt hjá og fórnarlambið beðið hann um að hringja á lögregluna.

„Maðurinn sem var laminn snéri sér við á gangstéttinni og reyndi að standa upp á meðan hann bað gamla manninn um að hringja í lögregluna, ég var þá búin að hringja sjálf og lögreglan sagðist vera á leiðinni.“

Konan segir að lögreglan hafi komið á vettvang um einni mínútu eftir að mennirnir hlupu á brott.

„Það kallaði einhver frá blokkinni að þeir hefðu verið á hvítri Toyotu. Lögreglumennirnir töluðu við fórnarlambið og eldri manninn þangað til að sjúkrabíll kom. Þá var fórnarlambið aðstoðað á börur, inn í sjúkrabíl og honum ekið í burt. Lögreglan tók síðan skýrslur af þó nokkrum nágrönnum sem gáfu sig fram og mikið af krökkum söfnuðust saman á svæðinu.“

Henni finnst hræðilegt að svona gerist um hábjartan dag. „Þarna labbar fólk daglega með börnin sín og gæludýr.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×