Arsenal vann Man. City og verður í öðru sæti yfir jólin | Sjáðu mörkin Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. desember 2015 21:45 Arsenal-menn fagna marki Oliver Giroud sem reyndist sigurmark leiksins. vísir/getty
Arsenal varði annað sætið í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið lagði Manchester City, 2-1, á Emirates-vellinum í kvöld. Theo Walcott kom Arsenal í 1-0 á 33. mínútu með algjörlega frábæru marki, en hann þrumaði þá boltanum í netið vinstra megin úr teignum, óverjandi fyrir Joe Hart. Oliver Giroud tvöfaldaði forskot Lundúnarliðsins þegar hann slapp einn í gegn en Frakkinn lagði boltann snyrtilega undir Joe Hart úr þröngu færi á 45. mínútu, 2-0. Yaya Touré minnkaði muninn í 2-1 á 82. mínútu með glæsilegu marki, en hann stýrði boltanum skemmtilega í samskeytin fjær með hnitmiðuðu skoti. Virkilega vel gert hjá Fílabeinsstrendingnum. Eftir markið fór Manchester City loks almennilega í gang og gerði orrahríð að marki Arsenal en allt kom fyrir ekki. Gestirnir fengu nokkur góð færi en Yaya Touré var mjög hættulegur á lokakaflanum. Arsenal stóð af sér stórsókn City og vann góðan sigur, 2-1. Með sigrinum komst Arsenal í 36 og er í öðru sæti tveimur stigum á eftir Leicester sem verður á toppnum um jólin. Manchester City missti Arsenal fjórum stigum fram úr sér en City-liðið er í þriðja sæti með 32 stig eftir 17 umferðir.Theo Walcott kemur Arsenal í 1-0 með þrumuskoti: Oliver Giroud kemur Arsenal í 2-0: Yaya Touré minnkar muninn í 2-1 með frábæru skoti:
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira