Guðjón: Ég vildi semja við Jamie Vardy Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. desember 2015 18:38 Guðjón Þórðarson og Jamie Vardy. Vísir/Anton/Getty
Knattspyrnuþjálfarinn Guðjón Þórðarson greindi frá því í viðtali á Akraborginni á X-inu í dag að sóknarmaðurinn Jamie Vardy hafi verið til reynslu hjá sér þegar hann var stjóri Crewe á Englandi. Vardy er í dag heitasti framherji ensku úrvalsdeildarinnar en hann skoraði um helgina í ellefta úrvalsdeildarleiknum í röð sem er met í deildinni.Sjá einnig: Saga Jamie Vardy er lygileg en alveg fullkomlega sönn „Það var starfsmaður hjá Crewe, Neil Baker, sem fylgdist með leikmönnum í neðri deildunum og hann kom með þennan strák um okkar,“ sagði Guðjón en Vardy hóf sem kunnugt er feril sinn í utandeildinni á Englandi og var á þessum tíma á mála hjá Stocksbridge Park Steele. Hann var þá 22 ára. „Hann var hjá okkur í viku eða tvær og var sprækur, skemmtilegur og kvikur. En það endaði þannig að ég vildi semja við hann en fékk ekki heimild til þess,“ sagði Guðjón en yfirmaður knattspyrnumála hjá Crewe lagðist gegn því að samið yrði við Vardy.Sjá einnig: Vardy sló met Nistelrooy | Sjáðu markið „Ég vildi fá hann. Hann var horaður eins og handarbakið á manni en afar kvikur og vinnusamur. Hann hefur átt flottan feril þessi strákur - glæsilegan.“ Guðjón segir að það hafi verið orð manna á þessum tíma að hinn 22 ára Vardy væri að verða of gamall svo að hægt væri að semja við hann. „Hann hefði þurft að geta þetta 18 eða 19 ára, það sem hann gerði þá. En það sem maður sá í honum - þessi hreyfanleiki, þessi ófyrirleitni og þessi mikli vilji.“ „Ég var alveg á því að þessi strákur gæti orðið góður í fótbolta en hversu góður var ekki hægt að sjá fyrir. Ég held að enginn hafi séð þetta fyrir, það sem hann hefur afrekað.“ Guðjón fer yfir í viðtalinu hvernig hann sá fyrir sér að nota hann hjá Crewe og bætir við að þeir sömu menn og höfnuðu Vardy voru ekki hrifnir af því Gylfi Þór Sigurðsson kæmi á láni til félagsins á sínum tíma.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Qarabag - Vestri | Fyrsti Evrópuleikur Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Handbolti Fleiri fréttir Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sjá meira