Kanada og Kína áfram | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. júní 2015 07:55 Heimamenn fagna í gær. Vísir/Getty
Lokaumferð A-riðils á HM kvenna í fótbolta fór fram í nótt. Gestgjafarnir í kanadíska landsliðinu tryggðu sér sigur í riðlinum þrátt fyrir að hafa fengið á sig síðbúið jöfnunarmark gegn Hollandi. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Kanada endaði í efsta sæti riðilsins með fimm stig. Kína hefði getað skotist á toppinn en mátti sætta sig við 2-2 jafntefli við Nýja-Sjáland á sama tíma. Svo fór að Kína og Holland urðu jöfn að stigum í 2.-3. sæti með fjögur stig hvort. Kínverjar enduðu með betra markahlutfall og fara því beint áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Fjögur af þeim sex liðum sem lenda í þriðja sæti riðlanna komast einnig áfram í 16-liða úrslitin og má telja afar líklegt að jöfnunarmark Hollendinga gegn Kanada í gær hafi tryggt að þeir fari sömuleiðis áfram í útsláttarkeppnina. Nýja-Sjáland er hins vegar úr leik. Ashley Lawrence kom Kanada yfir snemma leiks í nótt en Kirsten van de Ven skoraði jöfnunarmarkið dýrmæta þegar fimm mínútur voru til leiksloka. Rúmlega 45 þúsund áhorfendur voru á leiknum og sem fór fram á Ólympíuleikvanginum í Montreal. Þeir gátu fagnað því að Kanada komst áfram upp úr riðlinum í fyrsta sinn síðan á HM 2003.Holland - Kanada 1-1: Kína - Nýja-Sjáland 2-2:
Fótbolti Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Fleiri fréttir Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real „Ég get ekki breytt þessu“ Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Þú ert farinn að verða þybbinn“ „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Sjá meira