Liverpool hefði orðið enskur meistari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júní 2015 15:15 Raheem Sterling og Steven Gerrard fagna hér marki. Vísir/Getty
Chelsea vann ensku úrvalsdeildina á nýloknu tímabili og Liverpool var ekki mikið að blanda sér í toppbaráttuna eins og leiktíðina á undan. Það er samt hægt að uppreikna Liverpool-liðið alla leið upp í toppsætið. Liverpool hefði nefnilega orðið ensku meistari ef aðeins mörk enskra leikmanna hefðu talið en Englandsmeistarar Chelsea hefði aftur á móti rétt sloppið við fall. Það er Sky Sports sem tók þessa athyglisverðu tölfræði saman. Liverpool hefði þá verið með 71 stig eða fimm stigum meira en liðið var með þegar keppni í ensku úrvalsdeildinni lauk í vor. Chelsea hefði tapað heilum fimmtán stigum og endaði í 16. sæti. Liverpool hefði meira að segja unnið öruggan sigur í deildinni því næstu tvö lið, Crystal Palace og Tottenham, eru bæði með níu stigum færra, í þessari sérstöku töflu. Palace endaði í 10. sæti í raunverulegu töflunni og er því að hækka sig um átta sæti. Liverpool endaði í sjötta sæti deildinni og er því að hækka sig um fimm sæti. Arsenal lækkar um þrjú sæti niður í það sjötta og Manchester City fer alla leið niður um níu sæti í sæti númer ellefu. Ekkert lið lækkar sig þó meira en lærisveinar Jose Mourinho sem hefðu hrunið niður um fimmtán sæti hefðu aðeins ensku mörkin talið. John Terry (fimm) og Gary Cahill (eitt) voru einu ensku leikmennirnir sem skoruðu fyrir meistarana á leiktíðinni. Queens Park Rangers féll úr deildinni í vor en þeir hefðu endaði í áttunda sæti ef mörk erlendra leikmanna hefðu verið þurrkuð út. 69 prósent marka Liverpool-liðsins voru skoruð af enskum leikmönnum þriðjungur þeirra frá þeim Raheem Sterling eða Steven Gerrard. Það hjálpar vissulega Tottenham mikið í þessum útreikningi að liðið var með Harry Kane, sem skoraði 21 mark í ensku úrvalsdeildinni og varð markahæsti enski leikmaðurinn.Röð liða ef aðeins ensku mörkin hefðu talið: 1. Liverpool 71 2. Crystal Palace 62 3. Tottenham 62 4. Manchester United 58 5. Sunderland 55 6. Arsenal 53 7. West Ham 53 8. Queens Park Rangers 52 9. Everton 50 10. West Brom 50 11. Manchester City 48 12. Swansea 45 13. Stoke 41 14. Aston Villa 39 15. Southampton 38 16. Chelsea 37 17. Leicester 37 18. Burnley 36 19. Newcastle 33 20. Hull 24
Enski boltinn Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Spánn - Belgía | Hverjir ætla að vaða í Frakka? Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira