Taílandsstjórn hvikar ekki frá að efna til kosninga Guðsteinn Bjarnason skrifar 1. febrúar 2014 00:01 Stjórnarandstæðingar í Taílandi vilja ekki kosningar. Nordicphotos/AFP
Yingluck Shinawatra, forsætisráðherra Taílands, lætur engan bilbug á sér finna og efnir til þingkosninga á morgun, þrátt fyrir að úrslit þeirra séu ólíkleg til að breyta nokkru. Yingluck er talin eiga sigur nokkuð vísan og getur því eftir sem áður stuðst við meirihluta á þingi, en andstæðingar hennar munu áfram krefjast þess að hún segi af sér. Stjórnarandstaðan telur kosningarnar tilgangslausar, hyggst ekki mæta á kjörstað og ætlar að trufla framkvæmd þeirra eftir megni. Krafa mótmælenda er sú að Yingluck segi af sér ásamt ríkisstjórn sinni, en í stað kosninga verði mynduð bráðabirgðastjórn sem fái það hlutverk að breyta stjórnskipan landsins áður en kosið verði að nýju. Breytingarnar eigi að tryggja að Yingluck og fjölskylda hennar geti ekki lengur haft áhrif í stjórnmálum landsins. Mótmælendur munu því áfram fjölmenna á götum Bangkok og loka aðgangi að ýmsum stjórnarbyggingum. Búast má við hörðum átökum áfram og pattstöðu, sem lamar þjóðlífið. Stuðningurinn við stjórnina kemur frá landsbyggðinni, einkum í norðanverðu landinu þar sem fátækt er víða meiri en í höfuðborginni Bangkok. Andstæðingar stjórnarinnar eru hins vegar betur stæðir höfuðborgarbúar, sem höfðu verið vanir því að fara með stjórn landsins allar götur þangað til auðkýfingurinn Thaksin Shinawatra, bróðir núverandi forsætisráðherra, vann sigur í þingkosningum árið 2001. Thaksin höfðaði meira til alþýðunnar í sveitunum, en var sakaður um lýðskrum og spillingu. Hann hrökklaðist frá völdum árið 2006 og var á endanum dæmdur í fangelsi fyrir spillingu, og býr nú í útlegð utan landsteinanna. Yingluck er á hinn bóginn sökuð um að vera strengjabrúða í höndum bróður síns. Óvissan um kosningarnar snýst meðal annars um það, hvort stjórnarandstæðingum tekst að trufla framkvæmd þeirra nægilega mikið til þess að úrslitin verði ekki afgerandi. Nýtt þing getur til dæmis ekki komið saman nema tekist hafi að kjósa í að minnsta kosti 95 prósent af þeim 500 þingsætum, sem kosið er um.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Fleiri fréttir Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjá meira